Innlent

Reykræstu hús í Reykjanesbæ

Jóhann K. Jóhannsson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Brunavarnir Suðurnesja reykræstu einbýlishús að Framnesvegi í dag. Myndin er úr safni.
Brunavarnir Suðurnesja reykræstu einbýlishús að Framnesvegi í dag. Myndin er úr safni. Vísir/Jóhann
Brunavarnir Suðurnesja fengu útkall skömmu fyrir klukkan sex um að eldur logaði í húsi að Framnesvegi. Jón Gunnlaugsson slökkviliðsstjóri segir að í tilkynningu hafi verið grunur um að maður hafi verið sofandi inni í húsinu.

Þegar slökkvilið og sjúkraflutningamenn komu á vettvang reyndist maðurinn vera kominn út en eldamennska hafði farið úr böndunum. Enginn eldur logaði í húsinu en slökkviliðsmenn reykræstu húsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×