Þegar langamma vildi drepa pabba Kristjana B Guðbrandsdóttir skrifar 29. desember 2018 08:30 Garpur I. Elísabetarson kvikmyndagerðarmaður frumsýndi myndina Frú Regína í vikunni. Myndin fer í sýningu á RÚV á nýju ári. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Saga fjölskyldu minnar er efniviður í miklu meira en þessa mynd. Þetta er bara byrjunin,“ segir Garpur Elísabetarson um nýja stuttmynd sína, Frú Regínu. Myndin var sýnd á sérstakri boðssýningu í Bíó Paradís í vikunni en verður á dagskrá RÚV fljótlega á nýju ári. Myndin fjallar um langömmu Garps, Elísabetu Engilráð, sem Kristbjörg Kjeld leikur. „Langamma mín lagði á ráðin um að drepa föður minn. Hún var ekki sátt við samband hans við móður mína og hafði miklar áhyggjur af neyslu þeirra beggja og ógæfu sem henni tengdist,“ segir Garpur. Foreldrar Garps eru Elísabet Jökulsdóttir skáld og Ingi Bæringsson áfengisráðgjafi. Þau áttu saman Garp og tvíburabróður hans Jökul. Á þeim tíma sem langamma þeirra lagði á ráðin voru þeir bræður ófæddir.Garpur og Kristbjörg á setti. "Ég er líka þakklátur Kristbjörgu Kjeld fyrir að hafa tekið að sér hlutverk Regínu. Frá því að ég fór að þróa verkefnið kom enginn annar til greina.“Hélt þetta væri draugasaga „Ég hélt alltaf að þetta væri bara einhver draugasaga. Að langamma mín hefði haft það í hyggju að drepa pabba minn. Svo þegar ég fór að heyra þessa sögu oftar og oftar héðan og þaðan úr fjölskyldunni, og að hún vildi draga bræður mömmu inn í málið, ákvað ég að spyrja nánar út í þetta. Út frá þeim svörum sem ég fékk skrifaði ég söguna og seinna handritið,“ segir Garpur frá. „En auðvitað gerist ekki neitt. Pabbi varð edrú þegar við vorum fjögurra ára gamlir og mamma fáeinum árum seinna. Pabba og langömmu varð þá vel til vina,“ segir Garpur. „Það er óhætt að segja að konur í minni ætt séu nokkuð harðar af sér. Ég þekkti langömmu sem ljúfa konu og það að hún hefði viljað ganga svona langt í von um að bæta líf dótturdóttur sinnar og okkar kom mér á óvart,“ segir hann.Brösug skólaganga Garpur segir líf þeirra bræðra í æsku hafa markast af líðan og heilsu foreldra þeirra. Skólagangan var til að mynda ansi brösug. „Við erum svo litlir þegar það versta er að ganga yfir. Ég man ekki mikið eftir neyslu og áfengi á heimilinu. Ég veit samt alveg í hvaða umhverfi við vorum, við bræður. En við fæðumst svona inn í endann á brjálæðinu öllu saman. Mamma og pabbi skilja og mamma fór í meðferð þegar við vorum níu ára gamlir. Ég tengi ekki endilega áfengi við allt sem gekk á í okkar lífi. Mamma var greind með geðhvörf á þessum tíma. Við vissum aldrei að hún væri veik. Það var oft verið að segja það við okkur bræður. En við skildum það ekki. Skildum ekki hvers vegna hún kom sér ekki fram úr rúminu í marga daga. Eða hvers vegna hún hvarf stundum,“ segir Garpur sem segir þá bræður hafa bundist sterkari böndum en ella vegna aðstæðna. Þeir sáu oft um sig sjálfir og þótt það hafi stundum verið erfitt þá vildu þeir fæstu breyta. „Við áttum hvor annan að. Það er það sem ég veit að kom okkur í gegnum þetta þegar ég lít til baka. En svo skiptu margir sér af okkur. Öll okkar ár í Hagaskóla hringdi ritarinn á skólaskrifstofunni í okkur til að vekja okkur og mæta í skólann. Svo mættum við bara einhvern tímann um hádegisbil,“ segir Garpur og hlær. „Við vorum líka mikið í slagsmálum, áttum í útistöðum við kennara og jafnvel ryskingum. Ég var oft hjá skólastjóranum. Stundum oft í viku,“ segir hann. Hann segir marga furða sig á því hversu vel þeim bræðrum hafi gengið í lífinu þrátt fyrir erfiðleikana. „Já, margir spyrja okkur að þessu, þið drekkið ekki, reykið ekki. Stundið heilbrigt líferni. Hvernig rættist eiginlega úr ykkur? Ég get auðvitað ekki svarað því. En ég hef samt mínar hugmyndir um það. Þótt mamma sé geðveik og pabbi alkóhólisti þá gerðu þau sitt og tókust á við vandamál sín. Við vissum að við vorum elskaðir. Mamma hefur alltaf gefið alla sína ást, allan sinn kærleika. Allt sem hún átti, alveg sama hvað hún var lasin. Og þótt við höfum ekki alist upp hjá pabba þá var hann oft til staðar. Hann er einn vitrasti maður sem ég þekki og hefur hjálpað mörgum síðan hann varð edrú. Við gátum leitað til hans. Við bárum óttablandna virðingu fyrir honum. Ef ég og bróðir minn höfðum gert eitthvað af okkur, þá var okkur sama ef það var hringt í mömmu til að láta hana vita. En annað gilti ef það var hringt í pabba,“ segir Garpur.Þurftu að ræða hlutina „Hann öskraði ekki á okkur. Hann lét okkur ræða það sem við höfðum gert. Og það er nú einu sinni þannig að ef maður gerir eitthvað heimskulegt og þarf að útskýra það fyrir einhverjum öðrum, þá kemur maður aldrei vel út úr því,“ segir Garpur og hlær. „Við sögðum stundum við pabba: Nei, plís, pabbi, ekki ræða málin. Ég þoldi þetta ekki. En þetta virkaði. Og nú geri ég það sama fyrir dætur mínar. Ég skamma þær ekki, ég ræði málin,“ segir hann. Garpur segir að þótt heimilisaðstæður þeirra bræðra hafi ekki verið góðar hafi margir í þeirra nærsamfélagi verið þeim góðir. „Það var net fólks í kringum okkur sem vildi hjálpa okkur. Við æfðum íþróttir, eiginlega allar þær sem við komumst í. Í kringum þær voru margir sem vildu okkur vel. Við fundum alveg að við vorum ekki einir,“ segir hann frá.Aðeins Kristbjörg kom til greina Það eru þrjú ár liðin síðan Garpur ákvað að setja verkefnið af stað. „Ég fór á fund með Þórhalli Gunnarssyni hjá Sagafilm og sagði honum þessa sögu. Hann sagði einfaldlega: Garpur, ef þú getur komið þessu í handrit, þá gerum við þetta bara. Ekki spurning. Ég gerði það og lærði mikið af ferlinu. Þegar vinnslan hófst hafði fólk samband við mig og bað um að fá að taka þátt. Fyrir það er ég þakklátur. Ég er líka þakklátur Kristbjörgu Kjeld fyrir að hafa tekið að sér hlutverk Regínu. Frá því að ég fór að þróa verkefnið kom enginn annar til greina. Ég hringdi í hana og kynnti mig og bauð henni að senda henni handritið í tölvupósti. Hún svaraði: Nei, Garpur. Þú kemur með það,“ segir Garpur og hlær að minningunni. „Hún hringdi svo strax í mig daginn eftir og sagðist vera til og þá fór boltinn að rúlla,“ segir hann. Garpur segir fleiri verkefni í deiglunni. „Myndin er aðeins sautján mínútur. Það er það sem var erfiðast í þessu ferli. Að skera niður efnið í þessa lengd því sagan er svo stór og mikil. Þetta er ekki bara saga langömmu heldur líka bræðranna, mömmu og okkar. Ég sé fyrir mér að gera meira með það í framtíðinni.“ Frú Regína var sýnd fyrir fullum sal í Bíó Paradís á fimmtudag, og hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá frumsýningunni.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Auður segir skilið við Gímaldið Menning Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Lífið Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Fleiri fréttir Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn Sjá meira