Sex marka tap hjá stelpunum gegn b-liði Noregs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2018 15:27 Arna Sif Pálsdótti var markahæst í íslenska liðinu í dag. vísir/ernir
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með sex mörkum, 29-23, í æfingaleik á móti b-liði Noregs í Nadderud Arena í Osló í dag. Arna Sif Pálsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með fimm mörk en þær Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir skoruðu báðar fjögur mörk. Íslensku stelpurnar áttu bæði mjög góða spretti og slæma kafla í þessum leik en norska liðið bæði byrjaði og endaði leikinn miklu betur. Íslenska liðið byrjaði leikinn ekki vel því norsku stelpurnar skoruðu fimm fyrstu mörk leiksins og voru því komnar í 5-0 eftir aðeins sjö mínútur. Arna Sif Pálsdóttir minnkaði muninn með tveimur mörkum í röð og íslensku stelpurnar jöfnuðu metin í 9-9 eftir fjögur mörk í röð. Thea Imani Sturludóttir kom íslenska liðinu yfir í 11-10 rúmri mínútu fyrir hálfleik en norska liðið náði að jafna í 11-11 fyrir hálfleik. Íslenska liðið var yfir í upphafi seinni hálfleiks (12-11 og 13-12) en þá kom mjög slæmur kafli sem norsku stelpurnar unnu 8-1 og komust sex mörkum yfir, 20-14. Íslensku stelpurnar svöruðu með fimm mörkum í röð og minnkuðu muninn aftur í eitt mark, 20-19. Norska liðið var þó alltaf skrefinu á undan og gaf aftur í á lokasprettinum. Í lokin munaði sex mörkum á liðunum. Þetta var annar leikur íslensku stelpnanna í ferðinni því liðið vann 30-24 sigur á Kína í fyrradag þar sem Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst með sjö mörk. Norska b-liðið vann síðan Kína 29-17 í gær.Mörk íslenska liðsins í leiknum í dag: Arna Sif Pálsdóttir 5 Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 4 Þórey Rósa Stefánsdóttir 4 Lovísa Thompson 3 Thea Imani Sturludóttir 2 Sigríður Hauksdóttir 2 Eva Björk Davíðsdóttir 1 Ragnheiður Júlíusdóttir 1 Díana Dögg Magnúsdóttir 1
Handbolti Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti KR - KA | Hraðlestin komin aftur af stað? Íslenski boltinn Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Sjá meira