Innlent

Sigmundur Davíð ánægður með að geta treyst flokksfélögunum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sakaði ríkisstjórnina um aumingjaskap og sagði hana aðeins vera til fyrir sjálfa sig, í ræðu á flokksráðsfundi Miðflokksins sem haldinn var á Akureyri í dag.

Það var þéttsettinn bekkurinn á Hótel Kea og mátti greina mikinn einbeitingarsvip á fundargestum á meðan þeir hlýddu á ræðu formannsins. Snerist hún að miklu leyti um gagnrýni á ríkisstjórnina sem Sigmundur Davíð sagði hafa áorkað litlu þar sem hún þyrði ekki að taka stórar ákvarðanir.

„Hugsanlega vegna þess að það er ágreiningur á milli flokkanna um það, hugsanlega vegna þess að þau óttast gagnrýni en eins og ég rakti þá verða ekki raunverulegar breytingar til bóta nema menn þori að taka ákvarðanir sem eru umdeildar,“ segir Sigmundur Davíð.

Ríkisstjórnin væri eingöngu mynduð fyrir flokkana sem hana skipa í þeim tilgangi að manna ráðherrastólana.

„Það hvernig ríkisstjórnin gengur fram er afleiðing af því hvernig var stofnað til hennar,“ segir Sigmundur Davíð.

Sigmundur Davíð stofnaði Miðflokkinn fyrir um ári síðan eftir að hann sagði sig úr Framsóknarflokknum og segist hann upplifa allt aðra stemmningu innan Miðflokksins en innan hins gamla flokks.

Það sem stendur upp úr fyrir mér persónulega er hvað mér finnst gaman að vera í þessum hópi. Hver einasti maður sem maður hittir á þessum fundum er fólk sem manni líkar við og treystir sem er svolítið breyting frá því sem var á tímabili,“ sagði Sigmundur Davíð.

Þetta skili sér í góðu samstarfi á milli flokksfélaga.

„Af því að þetta eru vinir sem að hver treystir öðrum þá þora menn að koma með frumlegar hugmyndir og ræða þeir og það skilar sér oft í góðum lausnum,“ segir Sigmundur Davíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×