Lífið

Talar af einlægni og vill ekki klæmast: „Heiður að fá svona umsögn frá Ara“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jakob Birgisson sló í gegn sem uppistandari um helgina.
Jakob Birgisson sló í gegn sem uppistandari um helgina. vísir/vilhelm
„Þetta kom mér svolítið á óvart og ég átti ekki alveg von á svona góðum viðtökum,“ segir uppistandarinn tvítugi Jakob Birgisson í Bítinu á Bylgjunni í morgun en grínistinn Ari Eldjárn var afar ánægður með nýjan starfsbróður sinn sem stimplaði sig rækilega inn í íslenska uppistandssenu um helgina.

Jakob er stjórnmálafræðinemi og hélt sitt fyrsta opinbera uppstand á Hard Rock Café á föstudagskvöldið.

Ari jós Jakob lofi á Twitter-reikningi sínum eftir að hafa hlýtt á uppistand hins síðarnefnda og sagðist aldrei hafa séð „annað eins talent“.

„Ég var nokkuð öruggur með þetta efni og vissi alveg að þetta myndi alveg ganga fínt fyrir sig, en þetta var rosalegt. Að vakna daginn eftir og það er komin frétt á Vísi og svona. Auðvitað er það bara rosalegur heiður að fá svona umsögn frá Ara Eldjárn. Ég sá hann í salnum og hann skellihló allan tímann.“

Ari vinalegur

Jakob segist ekki hafa stressast upp þegar hann sá Ara í salnum.

„Hann er svo vinalegur og hefur þessa nærveru að hann er strax einhvern veginn orðinn vinur manns. Það var bara gott að hafa hann í salnum.“

Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis leit við hjá Jakobi þar sem hann býr úti á Seltjarnarnesi.vísir/vilhelm
Hann segist hafa flutt sitt fyrsta uppistand í tíunda bekk í Hagaskóla.

„Þetta var í raun einhverskonar uppistandsgjörningur fyrir Skrekksatriði og í framhaldinu á því fór ég að vera kynnir á söngkeppnum í MR og lagði mjög mikið upp úr því að semja efni milli atriða.“

Jakob segist tala af einlægni í sínu uppstandi og töluvert um fjölskyldu sína. Móðir hans er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar.

„Ég tala um mömmu og pabba og mikið um frænda minn. Þau eru í Bandaríkjunum núna í ár og geta ekkert varið sig, sem er bara fínt. Svo tala ég svolítið um stjórnmál,“ segir Jakob.

Vill að hver sem er geti mætt

Hann sagði frá því í viðtali við Vísi í byrjun mánaðar að selst hafi upp á sýninguna á aðeins tveimur dögum.

„Ég reyni að smíða efnið mitt þannig að hver sem er getur gengið inn í salinn og haft gaman af.“

Jakob segist minna fara út í brandara sem sumir myndu telja óviðeigandi

„Þetta var svolítið stórt stökk fyrir mig þegar ég ákvað núna í september að halda sýningu. Ég hugsaði bara að ég ætlaði að vera með sýningu í fjörutíu mínútur á sviði og ég hef aldrei flutt svona langt. Hef bara verið í afmæli hjá félaga mínu og í afmæli hjá mömmu minni verið með einhvern korter. Það er erfitt að setja niður og fara semja grín og mér finnst þetta mest gerast þegar ég er í göngutúr eða í skólanum. Þetta verður oft til bara í samtölum og allt í einu er ég kominn með brandara.“

Hann segist oft taka upp mögulega brandara á símann sinn og reynir síðan að þróa þá. Mikið hefur verð haft samband við Jakob um helgina og hefur hann verið bókaður í gigg út í bæ.

„Ég held klárlega að það sé málið að reyna halda aðra sýningu og ég fer að huga að því á næstu dögum.“

Hér að neðan má hlusta á innslagið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×