Innlent

Bjarni Bjarnason var kosinn stjórnandi ársins 2014

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni Bjarnason hefur staðið í ströngu sem forstjóri OR. Ekki er langt síðan hann greindi frá rakaskemmdum í umdeildum húsakynnum stofnunarinnar og nú hefur fallið skuggi á áður rómaða hæfni hans sem stjórnanda.
Bjarni Bjarnason hefur staðið í ströngu sem forstjóri OR. Ekki er langt síðan hann greindi frá rakaskemmdum í umdeildum húsakynnum stofnunarinnar og nú hefur fallið skuggi á áður rómaða hæfni hans sem stjórnanda.
Öll spjót standa nú á Bjarna Bjarnason, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur sem og stjórn hins opinbera fyrirtækisins, eftir harðorðar útlistanir Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fráfarandi forstöðumanns forstöðumanns einstaklingsmarkaðar hjá Orku Náttúrunnar – dótturfyrirtækis OR, á samskiptum sínum við forstjórann. Sem kemur á óvart því fyrir fjórum árum var Bjarni sérstaklega kjörinn stjórnandi ársins.

Stjórnandi ársins árið 2014

Áslaug Thelma heldur því fram að Bjarna hafi verið kunnugt um ruddalega framgöngu framkvæmdastjóra ON, sem kvartað var undan, en hafi snúið blinda auganu að því á þeim forsendum að framkvæmdastjórinn væri svo góður rekstrarmaður.

Málið hefur vakið mikla athygli en Bjarni sendi frá sér yfirlýsingu fyrir stundu þar sem hann segist ekki ætla að tjá sig um málið að svo stöddu.

Á vef OR er að finna frásögn af því þegar Bjarni Bjarnason þáði viðurkenningu úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar sem snéri að því að Bjarni væri afbragð annarra stjórnenda.skjáskot af vef or
Þetta klandur forstjórans hlýtur að koma mörgum í opna skjöldu. Þó ekki sé nema vegna þess að árið 2014 var Bjarni sérstaklega kosinn stjórnandi ársins af Stjórnvísi og þáði sem slíkur sérstaka viðurkenningu sem þáverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti við hátíðlega athöfn.

Nýtur virðingar starfsfólks að sögn

Orkuveita Reykjavíkur greindi frá þeim viðburði á vef sínum og vitnar skilmerkilega í afar lofsamlega umsögn dómnefndar um hæfi Bjarna sem stjórnanda. Hann er sagður öflugur leiðtogi, með sterka framtíðarsýn og hefur, að mati samstarfsmanna sinna, tekist að fylkja starfsfólkinu á bak við sig. Jafnframt að hann hafi látið jafnréttismál sérstaklega til sín taka.

Ef marka má umsagnir eru starfsmenn OR honum þakklátir fyrir að hafa náð að bjarga fyrirtækinu úr ógöngum.

„Hann er sagður sýna ótrúlega elju og dugnað, vera sanngjarn en kröfuharður og einnig góð fyrirmynd; hann fari fram af ákveðni en sýni mýkt þegar það á við og hlusti vel. Hann nýtur virðingar jafnt inni á vinnustaðnum sem og utan hans.“



Vakinn og sofinn yfir velferð starfsfólks

En, sem áður sagði er Áslaug Thelma ekki í hópi aðdáenda Bjarna. Og svo enn sé vitnað í umsagnir dómnefndar Stjórnvísis:

„Um leið og hann hafi náð gríðarlegum árangri í fjármálastjórnun, þá hafi hann fundið tíma til að sinna þáttum eins og upplýsingagjöf til starfsmanna, jafnréttismálum og umhverfismálum, auk þess sem þjónustumenningin hafi batnað með mælanlegum hætti undir hans forystu.“ Bjarni er aukinheldur sagður óhræddur við að hugsa út fyrir boxið hvort sem um er að ræða aðgerðir til hagræðingar eða að bæta starfsumhverfi starfsfólks.


Tengdar fréttir

Bjarni ætlar ekki að tjá sig

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitur Reykjavíkur, ætlar að svo stöddu ekki að tjá sig opinberlega um starfslok starfsfólks hjá Orkuveitunni eða dótturfélaginu, Orku náttúrunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×