FH fallið eftir þrennu frá Hlín Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. september 2018 21:14 Hlín var á skotskónum í dag en hér er hún í leik með íslenska landsliðinu. vísir/getty
FH er fallið úr Pepsi deild kvenna eftir tap gegn Val á Hlíðarenda í kvöld. Stjarnan vann öruggan sigur á KR. FH þurfti sigur til þess að eiga raunhæfan möguleika á að halda sér í efstu deild. Gestirnir byrjuðu af krafti en fengu mark í andlitið strax á fimmtu mínútu. Elín Metta Jensen var ein inni á vítateig FH og þá þarf ekki að spurja að leikslokum. Hlín Eiríksdóttir skoraði annað mark Vals á 36. mínútu og átti hún eftir að láta meira til sín taka. Staðan var 2-0 í hálfleik og eftir markalausan seinni hálfleik skoraði Hlín tvö mörk á fimm mínútna kafla undir lok leiksins og fullkomnaði þrennuna. Niðurstaðan 4-0 sigur Vals og FH spilar í Inkasso deildinni á næsta tímabili. Á Samsungvellinum í Garðabæ mættust Stjarnan og KR. Stjörnukonur hafa að litlu að keppa en KR er í bullandi fallbaráttu. Fyrri hálfleikur var markalaus og öll þrjú mörk Stjörnunnar í leiknum komu á níu mínútna kafla í seinni hluta síðari hálfleiks. Megan Dunnigan átti fyrsta markið á 76. mínútu, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir bætti við á 82. mínútu og Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði síðasta mark leiksins á 85. mínútu. Grindvíkingar, sem eru í fallsæti með 10 stig, geta jafnað KR að stigum með sigri á ÍBV á morgun. Markatala KR er hins vegar mun betri heldur en Grindvíkinga og ættu þær því að haldast í öruggu sæti, að minnsta kosti út þessa umferð.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira