Ótrúleg dramatík þegar Íranir unnu á sjálfsmarki í uppbótartíma

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íranir fagna sigurmarki sínu.
Íranir fagna sigurmarki sínu. Vísir/Getty
Carlos Queiroz stýrði Íran óvænt til sigurs í fyrsta leik á HM í Rússlandi en það verður erfitt að finna dramatískari endi á leik á þessu heimsmeistaramóti. Íran vann Marokkó 1-0 en sigurmark Írana skoraði framherji Marokkó.

Marokkó var mun meira með boltann í leiknum og sterkari aðilinn en Íranir ógnuðu mikið í skyndisóknum og föstum leikatriðum. Íranir fengu besta færi fyrri hálfleiks eftir skyndisókn og skoruðu síðan sigurmarkið eftir aukaspyrnu.  

Aziz Bouhaddouz, framherji Marokkó, var þarna kominn í vörnina til að verjast föstu leikatriði og skallaði boltann glæsilega í eigið mark. Það var enginn fyrir framan hann og enginn að trufla hann. Skelfileg mistök sem svo gott sem gerðu út um möguleika Marokkó á að gera eitthvað á þessu heimsmeistaramóti.

Hin liðin í riðlinum eru Spánn og Portúgal og afar ólíklegt að Marokkó fari að vinna báða leikina á móti þeim.

Næstu dagar verða erfiðir fyrir Aziz Bouhaddouz en hann sást strunsa af velli í leikslok á sama tíma og Íranir fögnuðu gríðarlega og þökkuðu Allah fyrir.













Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira