2.500 nýjar íbúðir frá hruni í borginni Sveinn Arnarsson skrifar 25. maí 2018 08:15 Íbúðir Búseta í Smiðjuholti risu meðal annars á kjörtímabilinu. VÍSIR/ERNIR
Á morgun ganga Reykvíkingar að kjörborðinu og velja sér 23 borgarfulltrúa til næstu fjögurra ára. Í kosningabaráttunni hafa valkostir borgarbúa kristallast í því að meirihlutinn hefur myndað blokk sem vill starfa áfram næstu fjögur árin. Borgarfulltrúum fjölgar um átta eftir þessar kosningar og þarf nú 12 borgarfulltrúa til að mynda meirihluta, frá átta sem nú er. Frá árinu 2008 hefur íbúðum í Reykjavík fjölgað um tæplega 2.500. Á þessu kjörtímabili hefur þeim fjölgað um 1.613. Á sama tíma hefur íbúum í Reykjavík fjölgað um tæplega fimm þúsund. Húsnæðismál hafa verið ofarlega á baugi í kosningabaráttunni í Reykjavík.Sjá einnig: Samfylkingin enn stærst í borginni Eitt helsta kosningamál Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar árið 2014, svokallaður húsnæðispakki, var að hefja uppbyggingu á 3.000 leigu- og búseturéttaríbúðum á næstu árum. Til að mynda átti að byggja um eitt þúsund stúdentaíbúðir. Ljóst þykir að þetta kosningafyrirheit Samfylkingarinnar hefur ekki verið efnt að fullu. Eru allir flokkar sammála um að skortur sé á húsnæði innan borgarinnar og verð á íbúðarhúsnæði hefur hækkað mikið. Svo mikið hefur fasteignaverð hækkað að einstaklingar og fjölskyldur hafa flúið borgina og keypt sér eignir, eða leigt sér íbúðarhúsnæði, í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.Átta flokkar buðu fram fyrir fjórum árum, sextán nú. „Það getur vel verið að þetta pólitíska landslag sé komið til að vera í Reykjavík og að framboðin verði mjög mörg í borginni eitthvað inn í framtíðina,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri. „Það er lægri þröskuldur nú með auknum fjölda borgarfulltrúa. Einnig verður það að segjast að það er auðveldara að fara af stað núna og bjóða fram lista með auðveldum boðleiðum til fólks í gegnum netið. Þetta gefur minni framboðum aukna von. Því gætum við séð að þetta landslag sé komið til að vera í Reykjavík.“ Það gæti haft mikil áhrif á framtíð meirihluta Reykjavíkurborgar hvernig litlum framboðum reiðir af, að mati Grétars Þórs. Hann segir litlu framboðin í raun vera meiri ógn við meirihlutann en Sjálfstæðisflokkurinn er. „Minni framboðin geta haft mikil áhrif á það hvort meirihlutinn haldi velli. Ef minni framboðin, sem eru í raun með lítið fylgi, ná inn mönnum með tæplega fjögurra prósenta fylgi gæti það fellt meirihlutann. Það er líklega meiri ógn en virðist stafa af Sjálfstæðisflokknum sem er ekki að stækka í könnunum þegar á líður,“ segir Grétar Þór.Samfylkingin fékk um 32 prósent atkvæða í kosningunum fyrir fjórum árum og Sjálfstæðisflokkurinn tæp 26 prósent. Flokkarnir tveir hafa verið að mælast á svipuðu róli að undanförnu. Framsóknarflokkurinn fékk 10,7 prósent síðast en virðist nú vera að berjast um að ná inn manni. Einnig fékk Björt framtíð rúmlega fimmtán prósenta fylgi síðast og það fylgi mun leita á náðir annarra flokka að þessu sinni. Grétar nefnir að fylgi Sjálfstæðisflokksins nú, sem breytist lítið frá því fyrir fjórum árum, sýni að flokkurinn sé að fá svipað fylgi í Reykjavík og á landinu öllu. „Þeir fengu 25,7 prósent síðast og árið 2010 fékk flokkurinn 33 prósent þrátt fyrir innkomu Besta flokksins og Jóns Gnarr. Það virðist fylgjast svolítið að, fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og fylgið á landinu öllu. Á sama tíma mælist Framsóknarflokkurinn langt undir kjörfylgi til Alþingis og Samfylkingin er að mælast mun hærri en á landinu öllu,“ segir Grétar.Grétar sér fyrir sér spennandi kosninganótt í Reykjavík. „Ef meirihlutinn er til að mynda að mælast aðeins of hátt getur þetta orðið hörkuspennandi. Einnig hvort litlu framboðin nái inn mönnum og felli þannig meirihlutann. Það gæti stefnt í það á endanum að meirihlutinn standi og falli með því hvort nýju framboðin nái inn eða ekki.“ Stærsti sigurvegari þessara kosninga, ef spár rætast, gæti orðið Miðflokkurinn, sem einnig státaði af afar góðu gengi í Alþingiskosningunum síðastliðið haust. „Stóra fréttin gæti verið að litast upp þannig að Miðflokkurinn verði sigurvegarinn og gæti vel endað með um tíu sveitarstjórnarmenn á landinu öllu. VG er nú á svipuðu róli og Björt framtíð náði inn 11 mönnum síðast. Það yrði gott veganesti fyrir Miðflokkinn en þeir bjóða fram í 12 sveitarfélögum,“ segir Grétar Þór að lokum.
Birtist í Fréttablaðinu Kosningar 2018 Tengdar fréttir Samfylkingin er enn stærst í borginni Útlit er fyrir að sjö flokkar fái fulltrúa í borgarstjórn, samkvæmt nýrri könnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu. Meirihlutinn heldur velli. 25. maí 2018 02:02 Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Fleiri fréttir Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú megi yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Lögreglan leitar enn að Ernu „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Tæplega tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Skráðum félögum í Nýju Avalon fjölgaði um 575 prósent Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut „Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Óvissa með kaffistofu Samhjálpar og listaverk Gerðar í hættu Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Jarðskjálftar í grennd við Húsafell en enginn órói „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Fluttur á slysadeild eftir að bifreið var ekið á rafskútu Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Sjá meira
Samfylkingin er enn stærst í borginni Útlit er fyrir að sjö flokkar fái fulltrúa í borgarstjórn, samkvæmt nýrri könnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu. Meirihlutinn heldur velli. 25. maí 2018 02:02
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“