Fótbolti

16 dagar í HM: Whiteside sá yngsti til þess að spila á HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
17 ára Whiteside í sínum fyrsta leik á HM 1982.
17 ára Whiteside í sínum fyrsta leik á HM 1982. vísir/getty
Norður-Írinn Norman Whiteside bætti met Pelé er hann varð sá yngsti til þess að spila á HM árið 1982. Hann átti þá framtíðina fyrir sér en fótboltaferillinn varð ekki eins glæstur og vonir stóðu til um.

Whiteside var 17 ára og 41 degi betur er hann spilaði sinn fyrsta leik á HM á Spáni. Hann var þá enginn varamaður sem var tekinn með til þess að slá met. Whiteside fór beint í byrjunarliðið í fyrsta leik en hann hafði aðeins spilað tvö alvöru leiki í meistarflokki fyrir HM.

Fyrsti leikurinn var gegn Júgóslövum og hinn ungi Whiteside fékk gult spjald í síðari hálfleik fyrir harða tæklingu. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

Whiteside var aftur í liði Norður-Íranna fimm dögum síðar er það gerði jafntefli, 1-1, við Hondúras. Þau úrslit voru vonbrigði fyrir Írana enda þýddu þessu úrslit að liðið þurfti að vinna heimamenn frá Spáni í lokaleiknum til þess að komast áfram.

Norður-Írarnir komu heiminum á óvart með því að vinna leikinn 1-0 með marki frá Gerry Armstrong.

Í milliriðli gerðu Norður-Írar 2-2 jafntefli við Austurríki og svo steinlágu þeir, 4-1, gegn Platini og félögum í franska landsliðinu. Draumurinn um undanúrslit á HM dó þar hjá Whiteside og félögum.

Whiteside var afar bráðþroska og er einnig yngsti leikmaðurinn til þess að skora í enska deildabikarnum sem og í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar.

Hann skrifaði undir atvinnumannasamning við Man. Utd þegar hann varð 17 ára og varð fljótlega lykilmaður hjá United. Að sjálfsögðu varð hann yngsti markaskorari í sögu félagsins. Á næstu sjö árum spilaði hann 278 leiki fyrir félagið og skoraði 68 mörk.

Maðurinn sem uppgötvaði Whiteside og fékk hann til Man. Utd var sá sami og fann George Best á sínum tíma. Var sífellt verið að bera landana saman.

Meiðsli fóru snemma að gera Whiteside lífið leitt og meiðslin urðu til þess að hann spilaði sífellt minna og var seldur frá Man. Utd aðeins 24 ára gamall.

Whiteside fagnar í bikarúrslitaleik með United. Þarna má sjá Gordon Strachan og Paul McGrath með honum.vísir/getty
Everton keypti leikmanninn og Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hjálpaði Whiteside að semja við Everton. Hann gerði betri tveggja ára samning við Everton en hann hafði fengið undanfarin átta ár hjá United.

Ferillinn var stuttur hjá Everton því eftir aðeins tvö ár þurfti hann að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Þá var hann aðeins 26 ára gamall. Hann fékk góðgerðarleik þar sem Man. Utd og Everton spiluðu en aðeins rúmlega 7.000 áhorfendur mættu á leikinn. Sorglegur endir á flottum ferli þar sem tveir bikarmeistaratitlar stóðu upp úr.

Whiteside starfar í dag sem fótaðgerðarfræðingur. Hann er orðinn 53 ára gamall.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×