Erlent

Trylltur fögnuður braust út í Ísrael þegar ljóst var að sigurinn í Eurovision væri í höfn

Birgir Olgeirsson skrifar
Fögnuðurinn í Tel Aviv þegar sigurinn í Eurovision lá fyrir.
Fögnuðurinn í Tel Aviv þegar sigurinn í Eurovision lá fyrir. Vísir/Getty
Það var mikil gleði í Ísrael í gærkvöldi þegar ljóst var að Netta Barzilai hafði unnið söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, með laginu sínu Toy.

Margir fóru út á götur í Tel Aviv og stigu kjúklinga-dans til heiðurs Nettu.

Mannfjöldinn stöðvaði umferð og gerðu margir sér það að leik að stökkva í vatnsbrunn á Rabín-torginu fyrir framan ráðhúsið í Tel Aviv til að fagna sigri þessarar 25 ára gömlu söngkonu sem hafði áður sungið með hljómsveit ísraelska sjóhersins.

Sigur Nettu gerir það að verkum að Ísrael verður gestgjafi Eurovision á næsta ári en búist er við að keppnina fari fram í Jerúsalem, en Netta hrópaði það þegar hún tók við verðlaunagrip Eurovision.

Fjöldi þekktra Ísraela fagnaði sigri Nettu, þar á meðal leikkonan Gal Gadot, sem er þekktust fyrir að leika Wonder Woman, en hún sagði Nettu í raun vera holdgerving hinnar raunverulegu ofurkonu. Netta hefur greint frá því að hún sótti innblástur í Metoo-byltinguna þegar hún samdi lagið Toy.

Netta sagði frá því fyrir keppnina að henni hefði oft á tíðum verið strítt í æsku sökum holdafars og að hún hefði þróað með sér átröskun eftir fjölda tilrauna til að grennast.

Forsætisráðherra Ísrael, Benjamin Netanyahu, hringdi í Nettu til að óska henni til hamingju með sigurinn en hann sagði hana vera besta fulltrúa Ísraels á erlendri grundu. Forsætisráðherrann var svo ánægður með sigurinn að hann reyndi að dansa kjúklinga-dansinn fyrir blaðamenn.

Þetta er í fjórða skiptið sem Ísrael vinnur Eurovision. Það gerðist fyrst árið 1978 þegar Izhar Cohen og Alphabeta unnu í París með lagið A-Ba-Ni-Bi. Ísrael varði titilinn árið eftir með laginu Hallelujah sem Gali Atari og Milk and Honey fluttu. Árið 1998 vann svo Dana International Eurovision með lagið Diva.

Greint er frá því á vef breska dagblaðsins The Guardian að sigur Nettu hafi varpað mikilli athygli á Jerúsalem eftir að Netta hrópaði að keppnina færi fram þar að ári liðnu.

Netta vann Eurovision í ár með laginu Toy. Hún segist hafa sótt innblástur í Metoo-byltinguna þegar hún samdi lagið.Vísir/Getty
Ísraelsher tók borgina yfir árið 1967 en stutt er síðan Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ákvað að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Fór það áralangöngum samhljómi á meðal þjóða heimsins að líta á borgina sem hluta af bæði Ísrael og Palestínu og einhverskonar friðarsamkomulagi milli þessara tveggja þjóða.

Donald Trump hefur ákveðið að senda dóttur sína Ivönku Trump til Ísrael til að vera viðstadda opnun nýs sendiráðs Bandaríkjanna í borginni á morgun.

Forseti ísraelska þingsins sagði sigurinn í Eurovision vera frábæra kynningu Ísrael. Borgin væri ekki aðeins að fá bandarískt sendiráð heldur einnig Eurovision-keppnina á næsta ári.

Frá fagnaðarlátunum í Tel Aviv í gær.Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Segir að huga megi betur að sviðsetningunni

Fararstjóri íslenska hópsins í Eurovision segir keppendur ganga sátta frá borði þó atriðið hafi hafnað í neðsta sæti í keppninni. Þó sé tilefni til að huga betur að sviðsetningu okkar atriða í framtíðinni. Hann kveðst vona að hægt sé að horfa framhjá pólitík í úrslitum gærkvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×