Fótbolti

45 dagar í HM: Barnið í einu frægasta fagni sögunnar er orðið fullorðið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Bebeto fagnar á frægan máta með liðsfélögum sínum.
Bebeto fagnar á frægan máta með liðsfélögum sínum. vísir/getty
Mörkum í fótbolta þarf að fagna og það er gert á mismunandi máta. Sum fögn eru góð, önnur slæm en sum fagnaðarlæti eru svo eftirminnileg að þau eiga sér stað í sögubókunum. Eitt slíkt sást á HM 1994 í Bandaríkjunum.

Brasilíski framherjinn Bebeto kom verðandi heimsmeisturunum í 2-0 á móti Hollandi í frábærum leik í átta liða úrslitum eftir að Romário hafði komið Brössum í 1-0. Lífið lék þarna við Bebeto sem hafði skotið Brasilíu áfram með eina markinu í 1-0 sigri á Bandaríkjamönnum í umferðinni á undan.

Bebeto hljóp út að hliðarlínu og vaggaði ímynduðu barni. Þetta fagn varð um leið ein sögulegasta stund seinni tíma á HM enda hafði svona fagn ekki sést á svona stóru sviði áður. Félagar hans tóku undir og brasilíska gleðin heillaði heiminn enn eina ferðina.

Hollendingar áttu eftir að jafna metin áður en Branco skaut Brössum í úrslitaleikinn þar sem að liðið vann svo Ítalíu í fyrstu vítaspyrnukeppni sögunnar í úrslitaleik HM. Vítaspyrna Roberto Baggio er svo annar moli fyrir annan dag.

En, hvað varð um barnið sem Bebeto var að vísa til í fagninu?

Fótboltamaður eins og pabbi

Bebeto hafði eignast svo tveimur dögum fyrir leikinn á móti Hollandi. Brassarnir unnu Bandaríkjamennina í 16 liða úrslitum 4. júlí, sonurinn fæddist 7. júlí og tveimur dögum síðar var komið að leiknum á móti Hollandi. Það var margt í gangi hjá Bebeto þennan örlagaríka júlímánuð árið 1994.

Drengurinn var skírður Mattheus Oliveira en er bara kallaður Mattheus eins og allir góðir Brassar. Þar á bæ er eitt nafn meira en nóg eins og hjá Madonnu. Það þurfti svo ekki að koma á óvart að hann fór að æfa fótbolta og stefndi að því að verða landsliðsmaður eins og faðir sinn.

Því miður fyrir áhugamenn um skemmtilegar sögur er Mattheus ekki nálægt brasilíska landsliðinu og verður ekki á HM í Rússlandi í sumar. Vonin er þó ekki úti að barnið í fagninu mæti seinna meir á þetta stærsta svið fótboltans.

Mattheus er samt sem áður ágætis fótboltamaður. Hann hóf ferilinn eins og faðir sinn með Flamengo en fór til Portúgal 2016 að spila með Estoril. Eftir eitt gott tímabil þar keypti portúgalska stórveldið Sporting Mattheus og lánaði hann svo til Vitoria Guimares. Vegna meiðsla spilaði hann ekkert á þessari leiktíð.

Vanmetnasti Brassinn?

Þegar talað er um Bebeto er meira rætt um fagnið heldur en fótboltahæfileika hans. Það getur verið erfitt að vera brasilískur framherji og njóta sannmælis þegar að þú ert borinn saman við Ronaldo, Romário, Ronaldinho og fleiri góða.

Bebeto var samt enginn auli og langt frá því. Hann er líklega einn vanmetnasti leikmaður brasilíska landsliðsins frá upphafi. Hann var mikinn markahrókur og skoraði 86 mörk í 131 leik á Spáni fyrir Deportivo La Coruna áður en að hann fór á mikið flakk á sínum ferli.

Hann skoraði einnig 39 mörk í 75 landsleikjum fyrir Brasilíu og fékk gull og silfur á þeim tveimur heimsmeistaramótum sem að hann keppti á. Hann vann Copa America árið 1989 og álfukeppnina 1997. Þá var hann kjörinn besti leikmaður Suður-Ameríku árið 1989.

Fagnið lifir að eilífu sem og minningin um Bebeto og nú er bara að vona að Mattheus mæti til Katar eftir fjögur ár og skori til að leika fagn föður síns eftir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×