Innlent

Elliði í baráttusæti í Eyjum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Vísir/Eyþór
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, skipar að eigin beiðni fimmta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor en hann hefur leitt listann síðustu 12 ár. Hildur Sólveig Sigurðardóttir skipar fyrsta sæti á listanum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fulltrúaráði flokksins í Eyjum.

Framboðslistinn var samþykktur á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum nú í kvöld. Elliði Vignisson bað um að skipa fimmta sæti í ár eftir 12 ár í leiðtogasætinu. Hann verður þó áfram bæði leiðtogi og bæjarstjóraefni listans.

„Að vera leiðtogi snýst ekki um stöðu eða sæti, ætli maður sér að vera leiðtogi verður maður að vera tilbúinn til að hlusta og bregðast við. Eftir að hafa leitt listann úr fyrsta sæti í 12 ár tek ég alvarlega umræðu um þörfina á valddreifingu,“ er haft eftir Elliða.

„Ég get að mörgu leyti tekið undir þá skoðun að það fylgir því lýðræðishalli að vera í senn í öruggasta sætinu, vera bæjarstjóraefni, oddviti og sá sem er með langmestu reynsluna.  Þessu vil ég mæta með því að færa mig niður í framboðssæti sem að við lítum á sem sæti varabæjarfulltrúa. Ég vil líka líta á það sem skref til að skapa aukna sátt að víkja sætis fyrir ungt og nýtt fólk sem annars hefði ef til vill orðið að víkja af vettvangi bæjarmálanna,“ segir Elliði sem kvíðir því ekki að leiða listann sem varabæjarfulltrúi.

Í fyrsta sæti fyrst kvenna í 20 ár

Hildur Sólveig Sigurðardóttir er fyrsta konan í 20 ár sem skipar fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Eyjum. Hún segist auðmjúk og þakklát fyrir það traust sem henni hefur verið sýnt með því að taka fyrsta sætið.

„Það er ekki sjálfgefið að ungri konu sé falið hlutverk sem þetta og hvað þá að tvær konur skipi tvö efstu sætin.  Þetta tel ég bæði sýna styrk okkar sem flokks sem og þann hug sem reynslumikið fólk í starfi okkar ber til ungs fólks og kvenna. Eitt af því sem helst einkennir okkur frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins er einlægur vilji til þess að halda áfram að gera samfélagið okkar betra og til að gera það mögulegt hikar fólk ekki við að víkja til hliðar eigin hagsmunum fyrir hagsmuni heildarinnar. Við viljum öll taka þátt í þeim verkefnum sem fram undan eru af áhuga og festu, til heilla fyrir íbúa Vestmannaeyja,“ segir Hildur Sólveig.



Framboðslisti Sjálfstæðismanna er sem hér segir:

1. Sólveig Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari

2. Helga Kristín Kolbeins, skólameistari

3. Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri

4. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri

5. Elliði Vignisson, oddviti og bæjarstjóri

6. Margrét Rós Ingólfsdóttir, félagsfræðingur

7. Sigursveinn Þórðarson, svæðisstjóri

8. Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri

9. Andrea Guðjóns Jónasdóttir, sjúkraliði

10. Gísli Stefánsson, æskulýðsfulltrúi

11. Agnes Stefánsdóttir, framhaldsskólanemi

12. Arnar Svafarsson, sjómaður

13. Klaudia Beata Wróbel, nemi og túlkur

14. Bragi Ingiberg Ólafsson, eldri borgari

Sveitarstjórnarkosningar fara fram þann 26. maí. Framboð geta sent upplýsingar um lista ásamt mynd á ritstjorn@visir.is.


Tengdar fréttir

Ekkert verður af sögulegu prófkjöri í Eyjum

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélagsins þar í bæ kaus í kvöld gegn því að halda prófkjör en tillaga um að stillt yrði upp á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor náði ekki 2/3 atkvæða í desember og var því felld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×