Nýju rökin áróðursmeistarans Jón Þór Ólason skrifar 9. apríl 2018 07:00 Einar K. Guðfinnsson, formaður stjórnar Landssambands fiskeldisstöðva, viðheldur enn þrályndi sínu í grein er hann ritar í Fréttablaðið þann 23. mars sl. og telur mig stritast við að halda uppi andófi gegn uppbyggingu atvinnutækifæra og verðmætasköpunar í fiskeldi. Ekki er nú málefnaleg byrjunin hjá honum Einari, en lengi skal manninn reyna. Rétt er að halda því til haga að ég er í engu afhuga fiskeldi í lokuðum kerfum. „Þrákelkni“ mín snýr einvörðungu að eldi í sjókvíum og þá sérstaklega þeirri ótrúlegu staðreynd að notast sé við kynbættan lax af norskum stofni í eldinu. Það er hins vegar gömul saga og ný að ef einhver gerist svo djarfur að vilja vernda náttúru Íslands fyrir náttúruspjöllum fær viðkomandi slíka einkunn frá þeim sem rekur áróðursmaskínuna. Í þeirri grein er Einar kveðst vera að svara fór ég skilmerkilega yfir þá miklu fjárhagslegu hagsmuni sem eru í húfi í hinum dreifðu byggðum landsins. Eins og við var að búast svaraði Einar því hins vegar í engu enda stendur hann þétt að baki hinum erlendu aflandsfélögum sem ætla að fénýta íslenska náttúru. Einar lætur sannleikann ekki þvælast fyrir sér er hann síterar til áhættumats Hafrannsóknastofnunar þar sem hann heldur því ranglega fram að áhætta af erfðablöndun sé bundin við þrjár ár aukinheldur sem hann heldur því fram að sú erfðablöndun sem tilkynnt var af framangreindri stofnun í sex vatnsföllum á Vestfjörðum ágústmánuði í fyrra, sé ekki marktæk þar sem árnar eigi það sammerkt að vera ekki með eiginlega laxastofna! Er það nema von að mér verði orða vant að lesa svona rangfærslur. Einari er vel kunnugt um það að margir þættir í hinu tilvitnaða áhættumati eru mjög umdeildir, m.a. það dreifingarlíkan sem mat þetta byggir á. Í skýrslunni kemur vissulega fram að gert sé ráð fyrir að fjórar ár séu í hvað mestri hættu, þ.e. af þeim ám er féllu undir þau viðmið er skýrsluhöfundar miðuðu við. Í þessu sambandi má m.a. vísa til nýlegs viðtals við Leó Alexander Guðmundsson líffræðing þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að laxeldi ógni villta laxastofninum og vísar sérstaklega til þess að ýmsar ár sem séu á eldissvæðum séu ekki inni í áhættumatinu. Þá vísar Leó einnig til þess að erfðasamsetning stofna á Vestfjörðum gefi til kynna að þeir myndi sérstakan erfðahóp, m.a. þær ár sem Einar kveður ekki vera með eiginlega laxastofna. Sjókvíaeldi er vissulega stundað í nálægð við veiðiár og árósa í Noregi, sem skýrir m.a. hið skelfilega ástand laxastofna í Noregi þar sem erfðamengun hefur verið greind í tveimur þriðja hluta laxastofnana. Einar skautar hins vegar í öllu fram hjá að svara því er fram kemur í skýrslu norsku vísindanefndarinnar þar sem staðfest var að mestu ógnina við villta laxastofninn þar í landi megi rekja til laxeldis í sjókvíum og að laxalúsin frá sjókvíaeldinu nái til allra stofna í Noregi, líka þeirra sem eru ekki í nálægð við veiðiár og árósa. Norskar rannsóknir hafa líka sýnt að strokulaxar hafa ferðast í allt að 2.000 km áður en þeir hafa gengið upp í ár. Hér má t.a.m. taka ána Tista í Noregi sem dæmi en hún er í um 500 km fjarlægð frá næstu eldisstöð en er samt sem áður uppfull af eldislaxi. Þessar staðreyndir byggja á vísindum og þekkingu. Þá vísar Einar til þess að á sama tíma og laxeldi hafi margfaldast í Noregi séu villilaxastofnarnir þeir sterkustu í Norður-Atlantshafi. Það mætti hafa gaman af þessari nálgun Einars að staðreyndum ef málefnið væri ekki svona alvarlegt. Staðreyndin er einfaldlega sú að umræddur erfðamengaður villilaxastofn hefur ávallt verið sá sterkasti á umræddu svæði en hefur engu að síður minnkað um rúmlega helming. Til að setja þetta í rökfræðilegt samhengi að hætti áróðursmeistarans mætti líkja þessu við það að gefið hefði verið út sérstakt leyfi á Íslandi í lok maí 1844 til veiða á geirfugli þar sem sá stofn væri sá sterkasti í Norður-Atlantshafi, en eins og sagan segir okkur voru þeir tveir síðustu veiddir í Eldey í júní 1844. Að lokum varðandi tilvísun Einars til niðurstaðna Kevins Glover, prófessors í Bergen. Glover hefur sjálfur staðfest að umrætt líkan eigi ekki við Ísland þar sem eldi á norskum ræktuðum laxi feli í sér aukaáhættu vegna viðbótar erfðafræðilegra þátta sem ekki er tekið tillit til í líkaninu. Glover hefur einnig í ræðu og riti lýst þeirri skoðun sinni að full ástæða sé til að óttast erfðablöndun villtra laxa og eldislaxa hér á landi og að viðbúið yrði að sambærileg þróun mundi eiga sér stað á Íslandi og í Noregi með auknu laxeldi. Þar með eru öll „rök“ Einars K. Guðfinnssonar, sem hann skrýddi sig með, fallin. Það þarf ekkert lítið barn til að hrópa „En áróðursmeistarinn er allsber“ til að opna augu almennings hér um.Höfundur er formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur og lögmaður Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Sex hlutir sem þú vissir ekki um húsnæðisfélög Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fann málbeinið sitt Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Þegar hið óhugsanlega gerist Hrefna Sigurjónsdóttir Skoðun Gamla Reykjavíkurhöfn - Vesturbugt – ákall um nýtt skipulag Páll Jakob Líndal Skoðun Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun Ábyrgð og ábyrgðarleysi Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði! Harpa Barkardóttir Skoðun Klerkaveldi, trú og stjórnmál Sigurður Árni Þórðarson Skoðun „Drifkraftur að óöryggi og óvissu“ Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar Soffía Sigurðardóttir skrifar Skoðun Tími til að staldra við Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvar er fyrirsjánaleikinn, forsætisráðherra? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun 25 metrar í Fannborg Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína Kristján Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Frumvarp til ólaga Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar Skoðun Hervirki í höfuðborg - Svefngenglar við stjórnvölinn Örn Sigurðsson skrifar Skoðun „Drifkraftur að óöryggi og óvissu“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Klerkaveldi, trú og stjórnmál Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði! Harpa Barkardóttir skrifar Skoðun Gamla Reykjavíkurhöfn - Vesturbugt – ákall um nýtt skipulag Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fann málbeinið sitt Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sex hlutir sem þú vissir ekki um húsnæðisfélög Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Þegar hið óhugsanlega gerist Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Ábyrgð og ábyrgðarleysi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Þegar óttinn er ekki sannur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Fimm staðreyndir fyrir Gunnþór Ingvason Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Réttlæti byggir ekki á rangfærslum – svar við málflutningi þingflokksformanns Samfylkingar um veiðigjaldafrumvarpið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar Skoðun Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Á flandri í klandri Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Átak til að stytta biðlista barna eftir sérfræðiaðstoð Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Hverjir borga leikskólann í Kópavogi? Örn Arnarson skrifar Skoðun Tölvupóstar fjórðu iðnbyltingarinnar Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun „Skömmin þín“ Jokka G. Birnudóttir skrifar Skoðun Tökum samtalið Gunnþór Ingvason skrifar Skoðun „Eruð þið sammála lausagöngu katta?“ Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Réttlæti fyrir þjóðina, framfarir fyrir landsbyggðina Guðmundur Ari Sigurjónson skrifar Sjá meira
Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Réttlæti byggir ekki á rangfærslum – svar við málflutningi þingflokksformanns Samfylkingar um veiðigjaldafrumvarpið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar
Skoðun Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson skrifar
Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun