Aníta eini íslenski keppandinn á HM í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2018 11:45 Aníta Hinriksdóttir eftir bronsið sitt á EM innanhúss í fyrra. Mynd/Fésbókarsíða FRÍ
ÍR-ingurinn Aníta Hinriksdóttir verður eini keppandi Íslands á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem fer fram í Birmingham í Englandi dagana 1. til 4. mars. Þetta kemur fram á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins. Þetta verður þriðja heimsmeistaramótið innanhúss þar sem Aníta verður meðal keppenda. Hún keppti fyrst á HM í Sopot í Póllandi og svo aftur á HM í Portland 2016. Aníta varð í fimmta sæti í 800 metra hlaupi á HM fyrir tveimur árum. Aníta hefur náð lágmörkum í 800 metra og 1500 metra hlaupum. Aníta náði fyrst lágmarki í 800 metra hlaupi á Reykjavíkurleikunum þann 4. febrúar 2017 er hún hljóp á tímanum 2:01,18 mínútum sem er Íslandsmet í greininni. Lágmarkið er 2:02,00 mínútur innanhúss. Aníta náði lágmarki í 1500 metra hlaupi þann 6. febrúar síðasliðinn á IAAF World Indoor Tour mótinu í Düsseldorf í Þýskalandi. Þá hljóp hún 1500 metrana á tímanum 4:09,54 mínútum og setti um leið nýtt glæsilegt Íslandsmet í greininni. Lágmarkið er 4:11,00 mínútur og var hún því talsvert undir lágmarkinu. Þetta verður ellefta stórmót Anítu og fimmta heimsmeistaramótið og það þrátt fyrir að hún sé aðeins 22 ára gömul síðan í janúar. Fyrsta stórmótið hennar í fullorðinsflokki var Evrópumótið innanhúss í Gautaborg árið 2012. „Aníta er í hörkuformi þessa dagana og verður gríðarlega spennandi að fylgjast með henni á mótinu,“ segir í fréttinni á heimasíðu FRÍ.
Frjálsar íþróttir Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira