Gæludýr í Strætó 15. febrúar 2018 07:00 Undrun vekja fréttir um að stjórn Strætó bs. hafi leyft flutning gæludýra með strætisvögnum. Ég tel að þar sé meiri hagsmunum fórnað fyrir minni. Þeir farþegar, sem dýraofnæmi hafa eða óttast dýr, t.d. hunda, - oft af fenginni reynslu, skulu nú víkja fyrir því áhugamáli sumra dýraeigenda að ferðast í strætisvögnum með skepnur sínar. Ég tel ákvörðunina byggða á vanþekkingu og misskilningi, sem m.a. stafi af blekkingum sumra, sem knúðu á um breytinguna. Þeim rökum hefur verið hampað, að í sumum öðrum löndum sé þetta leyft. Það er rétt. Hins vegar láðist stjórninni að hafa í huga, að hjá grannþjóðum okkar er t.d. hundahald þróaðra en hér og fólk mun löghlýðnara en við Íslendingar. Það virðist í þjóðareðli okkar að fara ekki eftir settum reglum, boðum og bönnum. Það sést glögglega á mörgum sviðum þjóðlífsins. Á Reykjavíkursvæðinu eru taldir vera um 5.000 ólöglegir hundar, þ.e. óskráðir, óbólusettir og án ábyrgðartryggingar. Skráðir hundar munu álíka margir. Við sjáum daglega, að fjölmargir hundaeigendur hirða ekki upp skít frá dýrum sínum, þótt ábyrgir hundaeigendur standi sig vel að þessu leyti. Einnig sjáum við oft taumlausa hunda og að hundaeigendur virði ekki bannsvæði. Það segir líka sína sögu um ólöghlýðnina, að við sjáum í umferðinni oft á dag skýr dæmi um lögbrot ökumanna andstætt því sem við upplifum í umferðinni erlendis. Ég spyr hvort óskráðir og leyfislausir hundar verði fluttir með strætó? Er vagnstjórum ætlað það hlutverk ofan á erilsamt starf að hafa hemil á því? Ég nefndi blekkingar gagnvart stjórn Strætó bs. Ég sat af hálfu Astma- og ofnæmisfélags Íslands, AO, fund hjá Strætó bs. um málefnið. Til fundarins var boðið fulltrúum áhugafélaga um dýrahald, sem allir börðust fyrir því að komast í strætó með dýrin sín. Ég reyndi að gæta hagsmuna almennra farþega og þá sérstaklega veiks fólks. Reyndar stóðu fulltrúar vagnstjóranna einnig gegn þessari nýbreytni. Fulltrúi úr þvottastöðinni, (hundaeigandi), stóð hins vegar með þeim, sem á sóttu. Aðspurður um þrif á sætum vagnanna, kvaðst maðurinn aldrei þrífa sætin.Dró atkvæði til baka Faglegur fundarstjóri var starfsmaður Strætó bs. Þegar til atkvæðagreiðslu kom gerðist fundarstjórinn hlutdrægur og greiddi tillögunni atkvæði. Fundarstjórinn dró atkvæði sitt síðar til baka að fenginni athugasemd. Naumur meirihluti var þá fyrir nýbreytninni. Mér var ljóst að sumir greiddu tillögunni atkvæði sitt undir fölsku flaggi. Vil ég þar sérstaklega nefna formann Dýraverndarsambands Íslands, DÍS, sem í nafni félags síns og greiddi atkvæði með leyfi fyrir dýraflutningunum. Málefnið átti samt ekkert skylt við tilgang DÍS um dýravernd. Á heimasíðu DÍS segir að meginhlutverk félagsins sé skv. lögum þess: „Að vinna að bættri velferð dýra, taka virkan þátt í umræðu um málefni þeirra á opinberum vettvangi og stuðla að málefnalegri umræðu um dýravelferð. Að standa vörð um lögvernd dýra og stuðla að góðri lagasetningu og reglubundnu opinberu eftirliti til verndar dýrum. Að beita sér fyrir fræðslu og upplýsingamiðlun um góða meðferð dýra og hvetja skóla, félagasamtök og einstaklinga til að efla velferð þeirra.“ Ég spyr eins og formaður AO, Fríða Rún Þórðardóttir, í fréttatíma Söðvar2 þann 5. þ.m.: ,Hefur afstaða dýranna verið könnuð?‘ Nei, vitaskuld hefur það ekki verið gert, enda nánast óframkvæmanlegt. Almenn líkindi eru þó fyrir því, að flutningur dýranna með strætó skapi þeim ótta og vanlíðan. Stuðningsmenn breytingarinnar virðast því fyrst og fremst hugsa um eigin hagsmuni en hvorki velferð dýranna né annarra þeirra, sem með vögnunum þurfa að ferðast.Höfundur er lögmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar