Samráð eða sýndarlýðræði Benóný Ægisson skrifar 1. febrúar 2018 08:38 Eitt af tískuorðum dagsins er valdefling og þýðir eftir því sem ég kemst næst að hafa vald til að taka ákvarðanir og hafa aðgang að upplýsingum og úrræðum. Borgaryfirvöld í Reykjavík hafa á undanförnum misserum haft uppi tilburði til að auka vald íbúanna og samráð við þá en til að slíkar tilraunir virki þarf hugur að fylgja máli því annars verða þær í besta falli misheppnaðar en í versta falli hreint og klárt sýndarlýðræði. Flaggskip þessarar viðleitni borgaryfirvalda til valdeflingar íbúanna er verkefnið Betri hverfi sem gengur út það að ákveðnu fjármagni er úthlutað til hverfanna og íbúarnir gera tillögur um verklegar framkvæmdir og greiða atkvæði um þær. En áður en verkefni komast til atkvæðagreiðslu fara embættismenn borgarinnar yfir þau og velja út þau þóknanlegu. Þannig tók það þrjú ár að fá að greiða atkvæði um aparólu á leiksvæði Austurbæjarskóla því hún fann enga náð fyrir augum sérfræðinganna. Einnig eru dæmi um að embættismenn hafi bætt við verkefnum og tvö ár í röð fór megnið af fjármagni miðborgarinnar í að hlaða upp steinkantinn við tjörnina sem varla getur talist sérmál íbúa miðborgarinnar heldur flokkast undir almennt viðhald. Hugur íbúa borgarinnar til Betri hverfa kemur best fram í þátttöku í atkvæðagreiðslu en hún fór í fyrsta sinn yfir 10% í ár og er furðulegt að nokkur skuli telja það góðan árangur. Stjórnkerfis- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar undir formennsku Halldórs Auðar Svanssonar borgarfulltrúa Pírata hefur haft það verkefni frá upphafi kjörtímabilsins að móta lýðræðisstefnu fyrir Reykjavíkurborg. Nú hafa drög að lýðræðisstefnu litið dagsins ljós og nokkur atriði vekja þar athygli einkum vegna fjarveru sinnar. Hvergi er gert ráð fyrir samráði við íbúasamtök eða að þau komi nokkursstaðar að borðinu í þessu lýðræðisferli, ekki einusinni sem umsagnaraðilar. Reyndar kemur orðið íbúasamtök hvergi fyrir í drögunum að lýðræðisstefnunni sem veldur mér furðu því íbúasamtök eru grasrótarsamtök með lýðræðislega kjörnum stjórnum. Af ofanskráðu má ráða að íbúasamtök eru ekkert sérlega hátt skrifuð hjá núverandi borgaryfirvöldum og það er einnig tilfinning mín en ég hef setið í stjórn Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur í áratug. Það vantar ekki að okkur sé boðið að vera áheyrnarfulltrúar í ráðum og nefndum en hvergi höfum við atkvæðisrétt. Erindum og ályktunum er svarað seint eða alls ekki og sem dæmi um það er að enn er ósvarað áskorun stjórnar Íbúasamtaka Miðborgar frá 16. maí 2016 til borgarstjóra um að beita sér fyrir því að aukið samráð verði haft við íbúa miðborgarinnar í skipulagsmálum og að þeir fái að hafa meiri áhrif á framtíðaruppbyggingu hverfisins. Á síðasta ári var komið á sérstakri miðborgarstjórn en henni er ætlað að vera umræðu- og samstarfsvettvangur hagsmunaaðila í miðborginni og embættismanna Reykjavíkurborgar og var ekki vanþörf á því þar sem hagsmunaaðilar eru margir og mismunandi í miðbænum. Gerð var samþykkt verkefnastjórnar miðborgarmála en í henni var miðborgin ekki skilgreind sem íbúahverfi og var það ein af þeim athugasemdum sem stjórn Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur gerði við tillögur stýrihóps um stefnu og stjórnsýslulegt fyrirkomulag í miðborginni en í athugasemdunum sagði m.a: „Stjórn ÍMR finnst vanta skilgreiningu á miðborginni sem íbúahverfi enda búa þar á níunda þúsund íbúar sem taka verður tillit til. Lítið er í raun fjallað um íbúana sjálfa í drögunum og einnig þyrfti að skilgreina hverfið betur“. Ekki var mark tekið á þessari athugasemd og svona eftir á að hyggja ekki heldur öðrum athugasemdum sem stjórn ÍMR gerði. En verst kom þó úthlutun sérstaks miðborgarsjóðs við okkur í stjórn ÍMR en til verkefna íbúa var úthlutað um 3% úr sjóðnum og er því morgunljóst að þessi sjóður var aldrei ætlaður til verkefna íbúanna og megnið af honum fór til kaupmanna og rekstraraðila. Stjórn Íbúasamtakanna harmaði þann hug sem kom fram í þessari úthlutun en stjórnin stóð í þeirri meiningu að tilgangur sjóðsins væri m.a. að styrkja nærsamfélagið í miðborginni sem á margan hátt stendur höllum fæti. Þessi úthlutun er sú eina sem ætluð var sjálfsprottnum verkefnum íbúanna og dugði hún hvergi nærri til að fjármagna verkefni ÍMR og forsendur styrksins voru með þeim hætti að stjórnin sá sér ekki annað fært en að afþakka hann. Miðborg Reykjavíkur er flóknari að samsetningu en önnur hverfi borgarinnar og því er hlutverk Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur margþættara en íbúasamtaka í öðrum hverfum. Í miðborginni er fjöldi hagsmunaaðila meiri og meiri hreyfing á íbúunum en í öðrum hverfum og það leiðir af sér að hagsmunagæsla er íbúunum þeim mun mikilvægari en hverfisvitund er á margan hátt minni meðal þeirra en íbúa annarra hverfa. Þessvegna er mikil þörf á öflugum málsvara og lifandi og fjölbreyttu starfi og því hlutverki reyna Íbúasamtökin að sinna að fremsta megni. Það er gott að búa í miðbænum og við erum tilbúin til að starfa með öllum þeim sem vilja gera það enn betra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar