Hellisheiði og Mosfellsheiði opin á nýjan leik Kjartan Kjartansson skrifar 8. febrúar 2018 10:23 Lokað var fyrir umferð um Mosfellsheiði í morgun. Myndin er úr safni. Vísir/Egill
Opnað hefur verið fyrir umferð um bæði Hellisheiði og Mosfellsheiði. Lokað var fyrir umferð í morgun en í tilkynningu frá Vegagerðinni klukkan 10:53 segir að opnað hafi verið fyrir umferð. Veðurstofan varar við að reikna megi með slæmu skyggni í éljum suðvestan- og vestantil á landinu í dag. Vegagerðin lokaði Hellisheiði í morgun en í fyrri tilkynningum hennar var talað um að óvissustig væri í Þrengslum og á Mosfellsheiði. Í framhaldinu var Mosfellsheiði lokað en opnað á ný um ellefuleytið. Í tilkynningu Vegagerðarinnar er einnig varað við hálku á höfuðborgarsvæðinu, á Sandskeiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Reykjanesbraut og á Reykjanesi. Víðast hvar er einnig snjóþekja eða hálka á Suðurlandi og snjókoma. Þæfingsfærð er austanmegin við Þingvallavatns og í sunnanverðum Hvalfirði. Það er hálka, snjóþekja eða þæfingur og skafrenningur eða éljagangur á vegum á Vesturlandi. Þæfingsfærð og snjókoma er frá Kolás og upp í Norðurárdal í Borgarfirði og á Bröttubrekku. Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Þungfært er á Klettsháls en verið að hreinsa. Þæfingsfærð og snjókoma er í Ísafirði og á Hjallháls. Á Norðurlandi er víða hálka eða snjóþekja. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi og með suðausturströndinni. Éljagangur er í Öræfasveit.Fréttin var uppfærð klukkan 11:03.
Veður Mest lesið Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Erlent Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Innlent „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Innlent Bindur vonir við Vor til vinstri Innlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent Fleiri fréttir Fjölmiðlar, bókmennir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Sjá meira