Lífið

Skagamenn stútfylltu dansgólfið á þorrablóti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosaleg stemning á Akranesi um helgina.
Rosaleg stemning á Akranesi um helgina. myndir/skagafréttir
Skagamenn skemmtu sér frábærlega á laugardagskvöld, en þá var þorrinn blótaður á Akranesi. Sóli Hólm stýrði gleðinni og náði frá fyrstu mínútu upp frábærri stemmningu sem hélst langt fram eftir nóttu.

Ríflega 600 manns voru á staðnum. Matur var framreiddur af veitingahúsinu Galito á Akranesi og var mikil ánægja með hann eins og fyrri ár.

Skagamaður ársins sem valin af Akraneskaupstað var að þessu sinni Sigurður Elvar Þórólfsson ritstjóri Skagafrétta og útbreiðslustjóri hjá Golfsambandi Íslands. Skagafréttir er fjölskylduverkefni sem Sigurður Elvar stýrir ásamt foreldrum sínum, systkinum, frændfólki og börnum.

Sigurður Elvar hefur lagt mikinn metnað og alúð í uppbyggingu vefsins og hafa þau tileinkað sér starfshætti þar sem þau nálgast hlutina með öðrum hætti, ýta undir það jákvæða og fjalla um þau atriði sem myndu e.t.v. ekki ná til annarra fjölmiðla. 

Stúttfullt dansgólf

Árgangur ´77 sá um Skagaskaupið sem er annáll síðasta árs fyrir Akranes.  Fengu þar margir Skagamenn að finna fyrir beittu gríni.

Fiðlusveitin Slitnir Strengir var með stórkostlegt tónlistaratriði og mætti einnig leiklistarklúbbur FVA með kraftmikið lag en þau frumsýna söngleikinn „Með allt á hreinu“ 10. mars. Helgi Björnsson og Sigga Beinteins stútfylltu dansgólfið og nutu stuðnings hljómsveitarinnar Bland sem sáu um ballið fram eftir nóttu.  

Þorrablót Skagamanna er haldið af árgangi ´71 á Akranesi en allur hagnaður blótsins rennur til Björgunarsveitarinnar og íþróttafélaga en golf, knattspyrna, sundi, fimleikar og íþróttafélag fatlaðra fá greitt í samræmi við vinnuframlag þeirra á blótinu.

Ljósmyndir Þorrablótsins voru teknar af Skagafréttum en myndir má sjá í myndaalbúminu hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×