Fótbolti

Skotar vilja fá Heimi og Lars mælir með honum: „Ég er í besta starfi í heimi“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir Hallgrímsson er væntanlega undir smásjá margra liða og landa.
Heimir Hallgrímsson er væntanlega undir smásjá margra liða og landa. vísir/afp
Skoska knattspyrnusambandið hefur áhuga á því að fá Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara Íslands, sem næsta þjálfara skoska liðsins en skoska sambandið fylgist grannt með málum Eyjamannsins, að því fram kemur í frétt The Times í dag.

Malky Mackay, fyrrverandi þjálfari Arons Einars Gunnarssonar hjá Cardiff, er bráðabirgðastjóri skoska landsliðsins sem er annars stjóralaust eftir að Gordon Strachan var látinn fara eftir undankeppni HM.

Skotland var fastagestur á HM frá 1974-1998 og komst á sama tíma tvisvar sinnum í lokakeppni HM en liðið hefur ekki komist á stórmót síðan á HM í Frakklandi árið 1998. Heimir Hallgrímsson er búinn að koma Íslandi á tvö stórmót í röð og í A-deild Þjóðadeildarinnar.

„Ég er í besta starfi í heimi þessa stundina, en ég er í símaskránni,“ segir Heimir við The Times.

„Það væri galið hjá mér að íhuga að skipta um starf á HM-ári. Við erum að fara á HM í fyrsta sinn.“

Sá sænski mælir með Heimi. Lars er í dag landsliðsþjálfari Noregs.vísir/vilhelm
Morgunblaðið greindi frá því fyrst í morgun að samningaviðræðum Heimis og KSÍ hefur verið frestað í bili en samningur Heimis rennur út eftir HM í Rússlandi.

„Öll mín einbeiting fer í að hugsa um Ísland á HM. Ég hef ekki efni á því að vera að hugsa um eitthvað annað. Ég verð að einbeita mér algjörlega að verkefninu. Þetta er bara sálfræði. Ég er 101 prósent að einbeita mér að Íslandi,“ segir Heimir í viðtalinu við The Times.

Heimir stýrði ÍBV í Pepsi-deild karla áður en hann varð aðstoðarlandsliðsþjálfari Lars Lagerbäck, síðar samþjálfari og svo aðalþjálfari en hann viðurkennir að gaman sé að honum sé sýndur áhugi.

„Ég las eitthvað um þetta en það hefur enginn haft samband við mig. Ég hef haldið einhver námskeið fyrir skoska sambandið og farið á árlega fundi að tala um unglingafótbolta á Íslandi. Skotland og Ísland vinna vel saman en það hefur enginn haft samband,“ segir Heimir.

The Times hafði samband við Lars Lagerbäck og spurði hvort Svíinn væri á því að Heimir væri góð ráðning fyrir Skotland. „Þið sjáið bara hvað hann hefur afrekað. Hann væri góður valkostur. Ég mæli með honum,“ segir Lars Lagerbäck.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×