Galdrastafirnir sáðu fræjum 11. janúar 2018 15:00 Hjónin Kristín Edda og Oddur Helgi stofnuðu Reykjavik Heritage ásamt vinahjónum sínum. MYND/ARON BRINK
Reykjavik Heritage var stofnað fyrir rúmlega ári og einblínir á hönnun og framleiðslu á litfögrum og skemmtilegum sokkum sem seldir eru í sérverslunum hér á landi. Það eru hjónin Kristín Edda Sigurðardóttir sjónfræðingur og Oddur Helgi Guðmundsson vefhönnuður sem standa á bak við fyrirtækið auk þeirra Sigþórs Hilmars Guðmundssonar, bróður Odds, og konu hans, Lindu Sverrisdóttur. Sigþór og Linda eru búsett erlendis og koma lítið að daglegum rekstri fyrirtækisins en öll fjögur deila þau miklum áhuga á sokkum.Fallegir litir og mynstur einkenna sokkana.Stærri markaður Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði fyrir um þremur árum í fjölskylduboði segir Kristín, þar sem verið var að ræða galdrastafina og þýðingu þeirra. „Þar nefnir mágur minn að tilvalið væri að prenta galdrastafinn Vegvísi á sokka þar sem merking hans felur í sér að sá sem ber hann muni aldrei villast af leið í stormi eða í slæmu veðri. Það má finna skemmtilega sokka víða erlendis en okkur fannst vanta líflega sokka á markaðinn frá íslenskum aðilum. Aukinn ferðamannastraumur hefur auk þess stækkað markaðinn og þannig fannst okkur tilvalið að reyna að búa til vöru sem gæti bæði gengið fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn.“ Í framhaldinu hófust þau handa við útreikninga, leit að hugsanlegum framleiðendum og seljendum og byrjuðu að kasta fram hugmyndum um hönnun á sokkum. Eftir smá forvinnu var Reykjavik Heritage stofnað í lok árs 2016.Áhersla á gæði Frá upphafi var lagt upp með að framleiða gæðasokka segir Oddur. „Eftir nokkra leit vorum við svo heppin að finna traustan framleiðanda í Svíþjóð sem framleiðir eftir ströngustu gæðastöðlum. Við skynjuðum það í upphafi að þeir höfðu nú ekki mikla trú á okkur en urðu svo hissa eftir því sem leið á árið 2017 og við héldum áfram að panta fleiri og fleiri sokka ásamt því að bæta við nýjum tegundum.“ Hann segir markmiðið alltaf hafa verið að höfða til sem flestra með litum og mynstrum. „Við hönnun höfum við notað tákn og mynstur með tengingu við Ísland. Sokkunum er skipt í tvær vörulínur, annars vegar Ísland þar sem við erum með fimm tegundir og hins vegar galdrastafi þar sem við erum með átta tegundir. Hver sokkur er kynntur á umbúðunum með stuttum hnitmiðuðum fróðleik.“Sokkar fyrir alla, konur, karla og börn.Góðar viðtökur Þau segja hópinn vera frekar jarðbundinn og því hafi viðtökurnar komið þeim skemmtilega á óvart. „Söluaðilar hafa verið afar móttækilegir og eru sokkarnir nú seldir víða. Hingað til hafa erlendir ferðamenn helst keypt sokkana og hafa margir þeirra haft samband við okkur þegar heim er komið af því þeir sjá eftir því að hafa ekki keypt fleiri pör. Við erum snögg að redda svoleiðis lúxusvandamálum og sendum þeim fleiri pör.“ Framundan er að vinna í að stækka sölunetið bæði hér heima og vonandi erlendis. „Við erum að vinna með alls kyns hugmyndir að litum og mynstrum, allt eftir straumum og stefnum. Einnig erum við að skoða með hvaða hætti er hægt að bjóða söluaðilum sérhönnun en slíkt væri tilvalið fyrir aðila sem eingöngu vilja selja undir eigin merkjum. Þannig að við erum bara bjartsýn á árið 2018. Helst myndum við vilja sjá að fánasokkurinn okkar væri skyldueign allra íslenskra þingmanna og embættismanna en slíkt myndi gefa lífinu örlítið meiri lit.“ Alla sokkana má skoða á reykjavikheritage.com, á Instagram og facebook.
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Fleiri fréttir Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Sjá meira