Ætlar að útskýra eðli ljóðsins fyrir krökkum Stefán Þór Hjartarson skrifar 12. janúar 2018 11:00 Aðalsteinn er með ýmislegt í verkfærakistunni sem getur vakið áhuga krakka á ljóðinu. Fréttablaðið/Vilhelm
Um helgina hefjast Dagar ljóðsins í Kópavogi. Þar er ýmislegt á boðstólum eins og opinn hljóðnemi, Nýlókórinn, listsýning og þeim lýkur svo með hápunktinum sem er afhending Ljóðstafs Jóns úr Vör, en hann verður afhentur í Salnum á sunnudaginn 21. janúar. Fyrsti viðburður Daga ljóðsins verður á morgun, laugardag, klukkan 13, en það er ljóðasmiðja „í léttum dúr“ – þar sem Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur og tónlistarmaður, mun leiða börn á aldrinum 8 til 12 ára um undraheima ljóðsins.Segðu mér Aðalsteinn, hvað verður brallað þarna í smiðjunni? „Ja, það er nú erfitt að svara því, þetta er svona tilraun. Kópavogsbær fékk mig inn til að halda smiðju og svo veit maður ekkert hvað út úr þessu kemur – í fyrsta lagi veit maður ekkert hvað kemur inn af krökkum í þetta. Allavega, það sem ég ætla að gera er að útskýra fyrir þeim aðeins hvað er ljóð, hvernig maður hugsar ljóð og hvaða aðferðum er beitt þegar ljóð eru samin.“Þú ert sem sagt ekkert að fara inn í þetta með einhverja tilbúna kennsluskrá? „Nei, alls ekki. Það er erfitt að vera með svoleiðis – maður veit ekki hvernig hópurinn er fyrirfram. En ég er með ýmislegt í verkfærakistunni má segja, og svo beitir maður því eftir því hvernig hópurinn er.“Þá einhverja leiki og æfingar og annað? „Já, það er svolítið þannig, og aðferðir til að nota í svona hópi.“Það hlýtur að vera skemmtilegt að fá að kenna ungu fólki um ljóðið? „Ungt fólk er rosalega opið og það er alltaf gaman að vinna með því þess vegna. Stundum lærir kennarinn mest af því að vera með námskeið, það er líka spennandi – maður er svona hluti af því, þetta er ákveðið samvinnuverkefni. Maður kemur alltaf reynslunni ríkari úr svona og þess vegna er maður líka til í að gera svona hluti, það kennir manni alltaf eitthvað og er þroskandi fyrir mann sjálfan. Bæjarfélagið á sannarlega lof skilið fyrir að hafa sinnt þessu með Ljóðstafnum og líka þessum dögum núna, mér finnst þetta alveg frábært. Kópavogsbær fær sérstakt prik fyrir það.“
Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Ólétt 52 ára Lífið Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira