Sólrún í Curry-ham og skólametið er nú hennar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2018 11:30 Sólrún Inga Gísladóttir. Vísir/Vilhelm
Hafnfirska körfuboltakonan Sólrún Inga Gísladóttir var heldur betur sjóðandi heit í leik með Coastal Georgia á móti Keiser University í bandaríska háskólakörfuboltanum. Sólrún skoraði níu þriggja stiga körfur í leiknum og alls 27 stig. Hún bætti þar með skólametið í þristum sem hún hafði jafnað með átta þrista leik í byrjun desember. Sólraun setti ekki aðeins skólamet heldur hefur enginn leikmaður í The Sun Conference náð að skora níu þrista í einum leik og hún er aðeins sjöundi leikmaðurinn sem nær því í allri NAIA 2. deildinni. Sólrún hitti úr 9 af 15 þriggja stiga skotum sínum í leiknum en hún tók ekki eitt einasta skot fyrir innan þriggja stiga línuna. Hún bætti skólametið með því að skella niður níundu þriggja stiga körfunni þegar 2:21 mínútur voru eftir af leiknum. Coastal Georgia vann leikinn 95-70 og var íslenska stórskyttan stigahæst í sínu liði. Sólrún var með níu þrista en allir hinir leikmennirnir á vellinum voru með 8 samtals. Liðsfélagar hennar skoruðu fimm og mótherjarnir aðeins þrjá. Sólrún var einnig með fjögur fráköst, tvo stolna bolta og eina stoðsendingu á þeim rúmu 33 mínútum sem hún spilaði.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira