Púlsinn fór upp úr öllu valdi þegar ég sá að Þórir var að hringja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2018 14:00 Þórir Hergeirsson og Henny Ella Reistad. Mynd/Samsett/Getty og @NORhandball
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, valdi unga og bráðefnilega handboltakonu í EM-hópinn sinn. EM í Frakklandi hefst eftir eina viku. Henny Reistad er 19 ára gömul og spilar með Vipers Kristiansand. Hún er vinstri handa skytta eða leikstjórnandi og er 180 sentímetrar á hæð. Henny Reistad sló í gegn á EM unglinga 2017 og HM unglinga 2018 þar sem hún var í úrvalsliðinu á báðum mótum. Norska liðið varð í öðru sæti á HM unglinga fyrr á þessu ári. Henny var líka valinn nýliði ársins í norsku deildinni á síðasta tímabili. Henny Ella Reistad verður ein af yngsti leikmönnunum sem Þórir hefur farið með á stórmót. Hún er fjórum árum yngri en sú næstelsta í hópnum. „Púlsinn hjá mér fór upp úr öllu valdi þegar ég sá að Þórir var að hringja,“ sagði Henny Reistad við Dagbladet en hún varð að halda þessu leyndu í nokkra daga þar til að norska handboltasambandið gaf þetta formlega út. Henny Reistad mun spila með átrúnaðargoðinu sínu á EM því fyrir í liðinu er hin 34 ára gamla Linn Jörum Sulland. Sulland lék sinn fyrsta landsleik árið 2004, þegar Henny var fimm ára, og hefur skorað 546 mörk í 182 landsleikjum.Henny og Linn er klare for Møbelringen Cup 2018 pic.twitter.com/HghDndhjBE — Erik Thomas Langerud (@etlangerud) November 21, 2018„Ég varð mikill aðdáendi hennar á EM 2010 þegar hún kom sterk inn af bekknum og stóð sig svo vel. Hún skoraði mikið af mörkum og var mjög skemmtilegur leikmaður,“ sagði Henny Reistad. Henny Reistad fær væntanlega tækifæri í kvöld þegar Noregur mætir Ungverjalandi á Möbelringen-æfingamótinu. Það verður þá hennar fyrsti landsleikur. EM fer fram í Frakklandi frá 29. nóvember til 16. desember. Norska landsliðið spilar í Brest og er í riðli með Rúmeníu, Þýskalandi og Tékklandi. Þórir hefur þrisvar sinnum gert norska landsliðið að Evrópumeisturum þar á meðal á EM í Svíþjóð fyrir tveimur árum þegar liðið vann alla átta leiki sína.
Handbolti Mest lesið Lungað féll saman hjá NBA-stjörnu Körfubolti „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Enski boltinn Varði skot mótherja með skónum sínum Körfubolti Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó Fótbolti Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Enski boltinn Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Enski boltinn Fleiri fréttir Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram Sjá meira