Bíllaus lífsstíll í stað líkamsræktar Elín Albertsdóttir skrifar 26. apríl 2018 06:00 Maríanna Clara Lúthersdóttir leikkona hjólar allt sem hún getur eða gengur. Hún segir að það séu gæðastundir sem hún notar til að hlusta á hljóðbækur. Vísir/ernir
Maríanna Clara segir að lengi hafi staðið til að taka bílpróf en hún hefur ekki enn látið verða af því. Hún er þó komin með leyfi til æfingaaksturs. "Maðurinn minn er með bílpróf en við eigum ekki bíl. Við búum í miðbænum og það er stutt í allar áttir fyrir okkar, hvort sem við göngum eða hjólum. Ég labba í vinnuna á veturna en þegar fer að vora tek ég reiðhjólið fram. Ég á snjóbuxur og góða úlpu og mér finnst ekkert mál að labba í hvaða veðri sem er. Kannski er ég ekkert smart en mér er hlýtt og ég slepp við að vera föst í umferð. Það eru forréttindi að geta gengið með börnin í skólann og til dagmömmunnar. Þetta eru gæðastundir,“ segir hún.Fór í splitt á meðgöngu Maríanna Clara segist vera 25-35 mínútur að ganga til vinnu. Þótt gangan sé fín líkamsrækt segist hún stöku sinnum fara í Pilates hjá Láru Stefánsdóttur til að styrkja og liðka líkamann. „Mér fannst æðislegt að fara út að hlaupa en þarf þá að taka minn tíma í það sem ég á ekki mikið af. Gönguna getur maður tengt við daglegt líf og fengið hreyfingu um leið. Það skiptir miklu máli á sviði að vera í góðu formi og að líkaminn hlýði manni. Ef líkaminn virkar ekki er maður í vondum málum,“ segir Maríanna Clara sem vakti mikla athygli þegar hún tók sig til og fór í splitt í leiksýningunni Mamma Mia! en þar lék hún eina af vinkonunum. „Það þótti nú sumum frekar erfitt að horfa á mig fara í splitt komna sex mánuði á leið,“ segir Maríanna Clara og hlær. Þessa dagana er hún að leika í Fólk, staðir og hlutir eftir Duncan Macmillan sem Gísli Örn Garðarsson leikstýrir á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. Sýningin fjallar um áfengis- og pillusjúklinginn Emmu og hefur fengið feikigóða dóma. „Vinnutíminn er misjafn hjá okkur leikurum, á meðan æfingatíminn stendur yfir er maður í dagvinnu sem síðan breytist í kvöldvinnu þegar sýningar hefjast. Fólk, staðir og hlutir er sýnd fimm sinnum í viku og ég labba til vinnu en fæ stundum far til baka. Þegar fer að birta meira á kvöldin ætla ég að hjóla báðar leiðir.“ Sonurinn er grænmetisæta Maríanna Clara segist hugsa hæfilega mikið um heilsuna. „Ég er í raun hófsemdarmanneskja, trúi því að allt sé gott í hófi. Maður eigi að borða allt og velja gott og hollt mataræði. Sonur minn er reyndar grænmetisæta þannig að við eldum oft grænmetisrétti. Hann tók þessa sjálfstæðu ákvörðun þegar hann var fjögurra ára að vilja ekki kjöt. Einn daginn sagði hann: „Ég heiti Dýri og elska dýrin.“ Fyrst hélt ég að þetta væru tiktúrur en svo reyndist það ekki vera. Hann er mjög duglegur að borða grænmeti og við reynum að hafa fjölbreyttan mat fyrir alla á matarborðinu.Maríanna Clara aðhyllist hollan lífsstíl en vill samt hafa allt í hófi. Vísir/ErnirEinu sinni vann ég í bókabúð og það var útsala á matreiðslubókum. Ég keypti nokkrar og þær vöktu áhuga minn á matargerð. Núna finnst mér gaman að prófa mig áfram með hina ýmsu rétti og þar á meðal úr grænmeti,“ segir hún og bætir við að það sama eigi við um líkamsræktina. „Best er að hún falli vel að hinu daglega lífi,“ segir Maríanna sem á tvö börn, sex ára son, Dýra, og átján mánaða dóttur, Míu. „Mig langar ekki að eyða löngum tíma í líkamsræktarsal í stað þess að vera með börnunum. Það er nógu erfitt að fara frá þessum krílum á hverju kvöldi,“ segir hún. „Mér finnst samt alltaf gaman í vinnunni þegar ég er komin þangað. Þetta hefur verið góður vetur eftir mikla törn og krefjandi í Mamma Mia!. Þar á undan var ég í Línu Langsokk sem gekk í eitt og hálft ár. Ég lék sömuleiðis í Guð blessi Ísland sem sýnt verður aftur í haust. Það er skemmtilegur fjölbreytileiki í þessu starfi og stundum koma tímabil þar sem maður er mikið frá heimilinu en á móti koma æfingatímabil sem eru léttari. En alltaf er líf og fjör í leikhúsinu.“ Húsaskipti til Frakklands Maríanna Clara hlakkar mikið til sumarsins. Þá tekur útivera og garðvinna við hjá henni. „Við ætlum að gera garðinn fallegan, taka til í skúrnum og síðan fara í húsaskipti við fjölskyldu í Frakklandi en það höfum við gert undanfarin sumur. Við höfum farið til Spánar og Frakklands og hlökkum mikið til að fara þangað aftur. Það er miklu ódýrara og þægilegra að fara í húsaskipti ef mann langar að ferðast með börnin. Við höfum verið mjög heppin með húsaskiptin.“ Maríanna Clara er bókmenntafræðingur að mennt auk þess að vera útskrifuð úr Leiklistarskóla Íslands. Hún skrifar bókmenntagagnrýni fyrir Tímarit Máls og menningar og Börn og menningu. „Með þessu rækta ég bæði líkama og sál,“ segir hún. „Ég var alltaf antisportisti þangað til ég byrjaði í Leiklistarskólanum. Þá fórum við í jóga, skylmingar, dönsuðum tangó og stunduðum sirkusfimleika en þá uppgötvaði ég að líkamsrækt þarf ekki að vera leiðinleg heldur getur verið mjög skemmtileg,“ segir Maríanna Clara.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Sjá meira