Benitez vill að ummæli Zaha verði tekin fyrir Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 21. september 2018 21:45 Zaha vill fá meira fyrir sinn snúð vísir/getty
Rafael Benitez vill að enska knattspyrnusambandið taki fyrir ummæli Wilfried Zaha þar sem hann segist þurfa að fótbrotna til þess að andstæðingurinn fái rautt spjald fyrir að brjóta á honum. Zaha lét orð sín falla eftir leik Crystal Palace og Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Hann var þar að vitna í brot Mathias Jorgenson á sér, en Jorgenson fékk gult spjald fyrir að fella Zaha. „Ég veit það fyrir víst að sumir ætla sér að reyna að meiða mig og ég veit ekki hvað ég á að gera lengur,“ sagði Zaha. „Ég enda á því að rífast við dómarana. Í dag þá fór andstæðingurinn með takkana í sköflunginn á mér, þurfa þeir að brjóta á mér fótinn til þess að fá rautt spjald?“ Samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar þá munu dómarar í úrvalsdeildinni ekki breyta því hvernig þeir dæma brot á Zaha. Benitez, sem mætir Zaha og félögum á morgun, sagðist vera hissa á ummælum Zaha. „Hann er góður leikmaður, á því er enginn vafi, en ég held að enska knattspyrnusambandið verði að taka á þessum ummælum,“ sagði Benitez. „Ég er viss um að Andre Marriner [dómari leiksins á morgun] muni ekki hafa hugan við orð Zaha í leiknum. Hann er mjög reyndur, þó hann sé kannski ekki með bestu ferilskránna þegar kemur að rauðum spjöldum, en ég hef trú á honum.“ Það hefur verið brotið 11 sinnum á Zaha í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni til þessa. Hann var á meðal fimm efstu leikmannanna sem brotið var oftast á á síðasta tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira