Það vantar kraftinn Lísbet Sigurðardóttir skrifar 10. mars 2017 09:39 Það hafa verið gífurlega mörg tækifæri fyrir unga Sjálfstæðismenn í Reykjavík til að láta rödd sína heyrast að undanförnu og til að berjast fyrir því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík standi vörðinn fyrir íbúana - tali fyrir leiðum að lægra útsvari, að fólki sé treyst fyrir eigin peningum og að borgin einbeiti sér að grunnþjónustu fyrir íbúana en láti gæluverkefni lönd og leið. Ég vil grípa þessi tækifæri og býð mig fram til formanns Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins í dag. Ég vil hefja upp raust Heimdallar og vera virkt aðhald fyrir kjörna fulltrúa flokksins í borginni. Ungt fólk í Reykjavík vill til dæmis standa á eigin fótum í eigin húsnæði, það vill flytja að heiman án þess að yfirgefa sveitarfélagið sitt. Það verður að skapa aðstæður í Reykjavík þar sem þetta er mögulegt og þar viljum við veita borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna lið okkar en þau hafa haldið uppi virkri og málefnalegri gagnrýni á stefnu meirihlutans í þessum málum. Það þarf að skapa umhverfi þar sem ungir jafnt sem aldnir geti búið undir eigin þaki. Borgarmálin eru spennandi vettvangur fyrir ungt fólk til að láta til sín taka. Borgin er nærumhverfi hvers og eins sem þýðir að auðvelt er að taka „litlar“ ákvarðanir á vettvangi borgarstjórnar sem hafa mikil áhrif á líf borgaranna. Ég vil, ásamt þeim ellefu manna hópi sem með mér stendur í framboði til stjórnar Heimdallar, fá fleiri unga að borðinu og fá þannig fleiri leiðir að lausn þeirra vandamála sem blasa við. Það vantar kraft í Heimdall. Ég hlakka til, fái ég til þess umboð, að leiða Heimdall af krafti næsta árið og til sigurs í Reykjavík í næstu borgarstjórnarkosningum. Við vonumst til þess að félagsmenn á aldrinum 15-35 ára veiti okkur það umboð í dag í Valhöll frá kl. 16-19. Við stöndum fyrir frelsi með ábyrgð, betri borg og galopið starf ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Sjá meira
Það hafa verið gífurlega mörg tækifæri fyrir unga Sjálfstæðismenn í Reykjavík til að láta rödd sína heyrast að undanförnu og til að berjast fyrir því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík standi vörðinn fyrir íbúana - tali fyrir leiðum að lægra útsvari, að fólki sé treyst fyrir eigin peningum og að borgin einbeiti sér að grunnþjónustu fyrir íbúana en láti gæluverkefni lönd og leið. Ég vil grípa þessi tækifæri og býð mig fram til formanns Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins í dag. Ég vil hefja upp raust Heimdallar og vera virkt aðhald fyrir kjörna fulltrúa flokksins í borginni. Ungt fólk í Reykjavík vill til dæmis standa á eigin fótum í eigin húsnæði, það vill flytja að heiman án þess að yfirgefa sveitarfélagið sitt. Það verður að skapa aðstæður í Reykjavík þar sem þetta er mögulegt og þar viljum við veita borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna lið okkar en þau hafa haldið uppi virkri og málefnalegri gagnrýni á stefnu meirihlutans í þessum málum. Það þarf að skapa umhverfi þar sem ungir jafnt sem aldnir geti búið undir eigin þaki. Borgarmálin eru spennandi vettvangur fyrir ungt fólk til að láta til sín taka. Borgin er nærumhverfi hvers og eins sem þýðir að auðvelt er að taka „litlar“ ákvarðanir á vettvangi borgarstjórnar sem hafa mikil áhrif á líf borgaranna. Ég vil, ásamt þeim ellefu manna hópi sem með mér stendur í framboði til stjórnar Heimdallar, fá fleiri unga að borðinu og fá þannig fleiri leiðir að lausn þeirra vandamála sem blasa við. Það vantar kraft í Heimdall. Ég hlakka til, fái ég til þess umboð, að leiða Heimdall af krafti næsta árið og til sigurs í Reykjavík í næstu borgarstjórnarkosningum. Við vonumst til þess að félagsmenn á aldrinum 15-35 ára veiti okkur það umboð í dag í Valhöll frá kl. 16-19. Við stöndum fyrir frelsi með ábyrgð, betri borg og galopið starf ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar