Lagerbäck gæti þurft að íhuga framtíð sína sem þjálfara norska landsliðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2017 09:30 Lars Lagerbäck. Vísir/Getty
Lars Lagerbäck, fyrrum þjálfari íslenska fótboltalandsliðsins, er allt annað en ánægður með norska landsliðið sitt. Lagerbäck hættir með íslenska landsliðið eftir EM í Frakklandi og tók síðan við norska landsliðinu í febrár síðastliðnum. Lagerbäck er svo ósáttur með spilamennsku norsku landsliðsmannanna að hann segist vera að íhuga framtíð sína sem þjálfara norska landsliðsins. Norska landsliðið er í 58. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA eða 36 sætum neðar en íslenska landsliðið. Lagerbäck segir að markmiðið hafi verið að komast inn á topp fimmtíu fyrir lok ársins. „Við erum þar sem við eigum skilið að vera en það er samt ekki það sæti sem ég var að vonast eftir,“ sagði Lars Lagerbäck í viðtali við Dagbladet. „Ef við förum ekki að bæta okkar leik þá mun ég horfa í spegil og velta því fyrir mér hvort sé rétti maðurinn í starfið,“ sagði hinn 69 ára gamli Lars Lagerbäck. Norska landsliðið tapaði síðustu leikjum ársins á móti Makedóníu og Slóvakíu. „Að mínu mati voru síðustu tveir leikir góðir af því að ég fékk svörin sem ég var að leita eftir. Nú veit ég betur hvaða leikmenn ég get treyst á,“ sagði Lagerbäck. Lagerbäck tók við norska landsliðinu þegar liðið var í 84. sæti á FIFA-listanum. Liðið hefur því farið upp um 26 sæti á þessu ári sem flestum þætti nú ágæt byrjun. Liðið hefur unnið þrjá af níu leikjum undir hans stjórn en tapað fjórum.
EM 2020 í fótbolta HM 2018 í Rússlandi Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Sjá meira