Norðanáhlaup hefur gengið yfir landið í dag og fengu Akureyringar að finna fyrir því. Talsverð ófærð var í bænum í morgun og lentu margir í vandræðum á leið í vinnu. Var öllu skólahaldi frestað vegna veðurs og ófærðar og hafa mokstursmenn haft í nógu að snúast það sem af er degi.
Spáð er norðlægri átt á Akureyri fram eftir kvöldi með talsverðri ofankomu. Það mun draga heldur úr vindi eftir því sem líður á nóttina en samhliða því mun stytta upp. Annað kvöld verður hæglætis veður þar í bæ samkvæmt veðurspá.
Ljósmyndarinn Auðunn Níelsson brá undir sig betri fætinum fyrr í dag og myndaði aðstæður í bænum og má skoða þær í myndasyrpu hér fyrir neðan.
Myndasyrpa frá vetrarríkinu Akureyri
Birgir Olgeirsson skrifar
