Ágústspá Siggu Kling - Nautið: Þér finnst að hjartað þitt sé að springa 4. ágúst 2017 09:00
Elsku Nautið mitt, þú hefur svo stórt hjarta og það rúmast svo margir í því, en það kemur fyrir að þér finnst að hjartað þitt sé að springa vegna þess að þér finnst þú þurfir að gæta og passa þá sem búa þar. Þú dettur ofan í það að hafa áhyggjur af flestöllu ástandi í heiminum og hefur svo hjartahlýja orku að þig langar til að bæta líf allra og hjálpa þeim sem eiga erfitt. Þegar þér tekst ekki að vera Guð almáttugur þá ferðu að efast um þitt eigið gildi og missir kraftinn þinn til að framkvæma þá góðu hluti sem þú ert svo sannarlega fær um. Þér á eftir að detta í hug að þú viljir breyta öllu, flytja jafnvel til útlanda og búa á heitum stöðum, en undirstaða þín er fólkið þitt svo þú munt ekki þola það lengur en í þrjár vikur! Þú notar pískinn á þig til að halda áfram svo að batteríin klárast oftar en þú vilt viðurkenna, en ég veit þú þrífst best undir álagi og nærð dásamlegum árangri sem öðrum væri nær ómögulegt að ná undir sömu kringumstæðum. Þú huggar þig of oft með mat og víni, svo hjá þér er það yfirleitt annaðhvort eða. Það eru svo margir sem eru skotnir í þér, bæði fyrir að vera manneskja og kynvera en þú átt erfitt með að trúa því hversu ótrúlega sexý þú ert. En þú þolir alls ekki höfnun og hleypur frekar heim til þín og læsir en að taka áhættu í ástalífinu. Ef þú hefur lent í því að skilja við ástina þá hugsarðu þig allt of mikið inn í gamlar aðstæður. Það sem kemur fyrir þig ef þú ert á lausu, elskan mín, er að þú finnur þig verða skotinn í persónu svipaðri þeirri og hefur áður verið í lífinu þínu, en það mun ekki ganga, það er alveg ljóst. Ég sá tilvitnun í mæta konu á forsíðu tímarits um daginn og þar stóð „ég skildi við sjálfa mig“. Þetta eru sterk skilaboð til þín, núna skaltu bara fara úr hamnum alveg eins og köngulóin íslenska gerir, og segja skilið við það sem er að hamla þér því þú hefur svo sannarlega kraftinn og allt að bera til að gera það núna. Í kortunum þínum er ólýsanleg gleði og þú átt eftir að finna þegar þú skilur við þig að þú ert hamingjusamasta manneskja sem þú þekkir. Þú fæddist svo tært og einlægt og þér var kennt að vera svo stillt og prútt en nú endurskipuleggurðu orkuna þína og næstu mánuðir gefa þér besta tíma ársins, þó að sjálfsögðu munu einhverjir verða þér erfiðir, en auðvelt fólk kennir þér ekkert hvort sem er. Setningin þín er: I‘m on the top of the world (The Carpenters)Fræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur, Davíð Rúnar Bjarnason, boxari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Framhald af Napóleonsskjölunum í vinnslu Bíó og sjónvarp Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Lífið Fleiri fréttir „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna Sjá meira