Ágústspá Siggu Kling - Steingeit: Gerðu allt af einlægni fyrir þá persónu sem þú elskar 4. ágúst 2017 09:00
Elsku Steingeitin mín. Þú gerir þá kröfu til sjálfrar þín að hafa allt á hreinu svo enginn hafi neitt á þig, en þú verður að vita það að ef einhver vill ráðast á þig þá er sama hversu fullkomin þú ert - það er auðveldara að finna færi á þér en öðrum þó að það sé ekki sanngjarnt. Það er ekkert sanngjarnt í þessu lífi - það er bara hvaða afstöðu þú tekur þegar þú lendir í erfiðleikum? Það er best fyrir þig að láta eins og ekkert sé og halda áfram með þínum fítonskrafti þó það sé reynt að leggja stein í götu þína. Þú ert með afbrigðum greind og fyrripartinn af lífinu þínu ertu dómhörð, en sveigjanleiki kemur með hverju árinu sem þú færð á aldurskortið þitt. Þú getur virst vera montin en það er bara það að þú ert varfærin þegar þú tengir þig við vini og ást, en þegar það er komið er ekki til hlýrri eða traustari manneskja. Þér finnst, þegar þú ert ekki í sambandi, að ástin sé þyrnum stráð og sú eða sá sem þú ert heilluð af skilji þig ekki alveg. Það er einfaldlega vegna þess að þú þarft að tala skýrar um hvað þú vilt og hvað ekki, ekki láta þér detta í hug í eina mínútu að manneskjan sem þú ert heilluð af hafi einhverja skyggnigáfu og viti bara hvað þú ert að meina. Gerðu allt af einlægni fyrir þá persónu sem þú elskar, brjóttu odd af oflæti þínu og sýndu henni allan þann kærleika sem þú svo sannarlega býrð yfir. Ef þú ert í ástarsperring við einstakling, sem er þín ekki verður, hlustaðu þá aðeins á annarra manna álit og fáðu lánaða dómgreind, því að heilinn þinn vinnur 365 daga á ári frá því að þú fæðist og þangað til þú verður ástfangin - þá fer allt í fokk. Að ná sér í Steingeit sem maka eða elskhuga er það besta sem getur komið fyrir flest merki, svo það eru miklu fleiri fiskar í sjónum; Sporðdrekar, Ljón og svo framvegis, ef þú ert að banka á vitlausa hurð. Í verkefnum og uppbyggingu á heimili eða því sem þig langar til að gera, mun allt ganga mjög vel á næstunni og þú byggir góða undirstöðu sem mun reynast þér betur en þig nokkurn tímann hefði grunað. Þú finnur þegar líða tekur á ágúst að þú ert eins og frjáls og slítur þau bönd sem hafa haldið þér niðri, jafnvel í langan tíma. Þú þarft hins vegar ekki að monta þig af neinu, því það mun koma í ljós fyrir þá sem þurfa að vita, hversu mögnuð manneskja þú ert. Það hefur allt í lífinu tilgang og þú ert sterkasti tilgangurinn og þegar þú sérð það muntu blómstra eins og gullregnið á góðum degi. Setningin þín: Sem sigurvegari fæ ég allt (The Winner takes it all - ABBA)Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja, Hendrika Waage hönnuður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Mótandi reynsla að upplifa dauðann Lífið Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Lífið Selena Gomez giftist Benny Blanco Lífið Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Lífið samstarf Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Lífið samstarf Ellefu ára læðan Lúsí ein eftir í heimilisleit hjá Kattholti Lífið Fleiri fréttir Mótandi reynsla að upplifa dauðann Selena Gomez giftist Benny Blanco Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Rapparinn og málverndarsinninn frjáls ferða sinna Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Fréttatía vikunnar: Moulin Rouge, Blóðbankinn og Eurovision „Lætur mér líða eins og tími minn í Hollywood hafi verið ómaksins virði“ Fögnuðu sögulegum 850 þúsund króna hátalara Ella Egils Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ „Kristrún Frostadóttir frá... Finnlandi?“ Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Víkingur Heiðar hlaut mjög virt verðlaun Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Framtíð Ísraela í Eurovision ákveðin í nóvember Fargufan nýjasta æðið á Íslandi Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lýsir raunum einhleypra í Reykjavík: „Tilhugalífið minnir á lélegt bókunarkerfi“ Þetta eru uppáhalds barnabækur ráðherranna Ástfangin á ný Hollywood-stjarna slær sér upp með prins „Er ekki hér til að keppast um fegurð“ Þriðja í heiminn hjá Rihönnu og A$AP Rocky Er ekki eðlilegt að stunda kynlíf á afmælinu? Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Minntist bróður síns fyrir fullum sal Sjá meira