Ágústspá Siggu Kling - Fiskur: Kemur siglandi til þín eins og skemmtiferðaskip 4. ágúst 2017 09:00
Elsku Fiskurinn minn. þú ert þín eina fyrirstaða ef einhver fyrirstaða er að mæta þér, en þú ert snillingur í að búa til ímyndað vesen og gætir búið til heilu leikritin sem væru sett upp í Þjóðleikhúsinu um framtíð þína. Stress er það eina í lífinu sem gæti drepið þig og þú þarft að segja við sjálfan þig: Ég er í fullkomnu jafnvægi og allt er yndislegt. Eftir því sem þú segir þetta oftar og lokar á þennan mörgu leyti ofvirka huga þinn, þá er engin hindrun lengur til staðar. Og þegar kvíðahugsanir fylla andrúmsloftið þitt skaltu tala við sjálfan þig eins og hund og segja: NEI og setja inn aðra hugsun, horfa jafnvel á eitthvað sem skiptir engu máli og „afruglar“ höfuðið á þér og þá verðurðu sterkari og sterkari með hverju andartaki því þú hefur þann einstaka hæfileika að halda að þú búir í framtíðinni og ekki núinu. Það tímabil sem þú ert að fara inn í núna einkennist af gleði og þú verður umkringdur þeim sem þú elskar og nýju fólki sem þú kynnist þegar líða tekur á þessa komandi mánuði og auðgar þennan ævintýrahuga þinn með nýjum hugmyndum, orðum og krafti. Þú hefur það svolítið í sinni þínu að finnast þú hafa mikinn galla (veit ekki hvern) en þarna dregurðu þig niður og reynir að breyta þér svo öðrum líði betur; ég bendi þér frekar á að umfaðma það sem þú telur vera galla hjá þér sjálfum, þykja vænt um þá og gera frekar grín að þessu öllu saman. Haustið kemur siglandi til þín eins og skemmtiferðaskip, eitthvað nýtt á hverjum fermetra sem þú gengur um, þarna verðurðu í essinu þínu og enginn tími til að velta sér upp úr einhverju sem í raun er ekki neitt hvort sem er. Þú elskar af ástríðu og ert helmingi rómantískari en þú heldur. Ekki bíða eftir rómantíkinni, búðu hana bara til. Setningin þín: Ég er glaðasti hundur í heimi (Frikki Dór)Frægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira