Strákarnir bættu sig um 38 stig frá NM og unnu Svíana á EM í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2017 17:00 Sigvaldi Eggertsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 18 stig. Mynd/FIBA
Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta vann átta stiga sigur á Svíum, 71-63, í Evrópukeppninni í Tallin í Eistlandi í dag. Strákarnir bættu sig um 38 stig frá því leik á móti sænska liðinu á Norðurlandamótinu fyrr í sumar. Ísland á því enn möguleika á að enda í níunda sæti í b-deild Evrópukeppni U18 eftir að hafa verið grátlega nálægt því að komast í átta liða úrslit keppninnar. KR-ingurinn Sigvaldi Eggertsson fór á kostum í leiknum og var með 18 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar en Skallagrímsmaðurinn Bjarni Jónsson bætti við 13 stigum, 12 fráköstum og 5 stoðsendingum. KR-ingurinn Orri Hilmarsson skoraði 12 stig en Njarðvíkingurinn Grétar Möller og Haukamaðurinn Hilmar Pétursson voru síðan báðir með 7 stig. Staðan var jöfn, 17-17, eftir fyrsta leikhlutann en íslenska liðið vann annan leikhlutann sannfærandi, 22-11, og var því komið ellefu stigum yfir í hálfleik, 39-28. Íslensku strákarnir héldu síðan góðu forskoti í þriðja leikhlutanum og lönduðu síðan sigri þrátt fyrir að Svíarnir hafi sótt svolítið að þeim í lokin. Íslenska liðið var 70-54 yfir en Svíarnir skoruðu þá níu stig í röð og minnkuðu muninn í sjö stig. Nær komust þeir þó ekki og 71-63 sigur var í höfn. Það sést vel á þessum úrslitum hvað strákarnir eru búnir að bæta sig undir stjórn Friðriks Inga Rúnarssonar í sumar því þeir töpuðu með 30 stigum á móti Svíum á Norðurlandamótinu í júní. Nú er liðið búið að finna fjóra flotta sigra á EM og getur tryggt sér níunda sætið á mótinu. Íslensku strákarnir byrjuðu mótið mjög vel með þremur sigurleikjum en töpuðu tveimur síðustu leikjum sínum í riðlinum og misstu þar með af sæti í átta liða úrslitunum.
Körfubolti Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira