
Betra fyrir íslenska liðið að spila á HM en EM

Íslenskt knattspyrnuáhugafólk er farið að horfa til sumarsins og margir eflaust farnir að skipuleggja sumarfríið sitt í Rússlandi.
Það verður ekki dregið í riðla í keppninni fyrr en 1. desember næstkomandi og það er erfitt að negla niður einhverja dagskrá fyrr en að það kemur í ljós í hvaða riðli, við hvaða þjóðir og á hvaða dögum íslenska liðið kemur til með að spila.
Íslenska landsliðið tók þátt í Evrópumótinu í Frakklandi fyrir að verða einu og hálfu ári síðan að þar sem íslenska liðið var með sama byrjunarlið í öllum fimm leikjunum.
Það er líklegt að Heimir Hallgrímsson muni ekki gera margar breytingar á byrjunarliði sínu á HM næsta sumar og álagið og ábyrgðin verður því á sömu mönnunum.
Tími á milli leikja mun því skipta íslenska liðinu miklu máli enda þurfa okkar menn að fá daga til að jafna sig.
Á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 voru þrír dagar á milli leikja íslenska liðsins í riðlinum en sá tími gæti lengst á HM í Rússlandi.
Íslenska liðið fékk fjóra daga til að undirbúa sig fyrir leikinn á móti Englandi í sextán liða úrslitunum (22. júní til 27. júní) sem kom sér mjög vel.
Það má búast við því að fjórir dagar verði á milli flestra leikja íslenska liðsins á HM í Rússlandi eins og Magnús Már Einarsson bendir á í frétt sinni á fótbolta.net.
Þetta er reyndar ekki algilt því það eru einhverjar undantekningar. Síðasti riðillinn, H-riðilinn, er sem dæmi með aðeins þrjá daga á milli leikja og það væri því ekkert gott að lenda í honum.
Hinsvegar gæti verið betra fyrir íslenska liðið að spila á HM en EM því liðið spilar væntanlega þrjá leiki sína í riðlunum á ellefu dögum í stað níu daga eins og á Evrópumótinu í Frakklandi.
Á móti kemur reyndar að það geta verið mun lengri ferðalög á milli leikstaða verði íslenska liðið óheppið með leikvelli. Það gæti því tekið sinn toll á móti.
Verði íslenska liðið hinsvegar heppið með ferðalög á meðan mótinu stendur þá ætti þessi aukadagur að nýtast lykilmönnum liðsins vel að safna orku fyrir næsta leik.
Tengdar fréttir

Strákarnir gista í „paradís“ í strandbæ við Svartahafið á HM | Myndir
Íslenska landsliðið mun gista og æfa í bænum Gelendzhik á HM í Rússlandi á næsta ári.

Íslensku strákarnir ekki þeir bestu í heimi, en þeir eru stórir og sterkir
Mikið hefur verið rætt um árángur Íslands í gærkvöldi í heimsfjölmiðlunum. Ísland varð minnsta þjóðin í sögunni til þess að komast í lokakeppni Heimsmeistaramóts og heimurinn hreyfst með í víkingaklappinu sem ómaði á Laugardalsvelli. Fótboltasérfræðingar ESPN fjölluðu um árángur Íslands í spjallþætti sínum.

Landsliðið í nýjum búningum í Rússlandi
Eins og einhverjir muna eflaust eftir voru skiptar skoðanir um búningana sem liðið spilaði í á EM. Framkvæmdastjóri KSÍ segir þó nýju búningana ekki gerða vegna einhverrar óánægju.

Litli knattspyrnurisinn til Rússlands
Ísland vann í gær eitt sitt allra stærsta íþróttaafrek í sögu þjóðarinnar er karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér þátttökurétt í lokakeppni HM, sem fer fram í Rússlandi næsta sumar. Árangurinn á EM í Frakklandi var engin tilviljun og strákarnir ætla sér enn stærri afrek á næstu misserum.

Lars Lagerbäck sendir Íslendingum kveðju: Ég vaknaði brosandi í morgun
Lars Lagerbäck, fyrrum þjálfari íslenska landsliðsins og núverandi þjálfari norska landsliðsins, sendi KSÍ og Íslendingum kveðju í tilefni af því að íslenska landsliðið tryggði sér sæti á HM í Rússlandi.

Eiður Smári: Aldurinn nær okkur öllum
Íslenska landsliðið og þeirra magnaða afrek er enn til umfjöllunar út um allan heim, og var Eiður Smári Guðjohnsen var í viðtali við bandarísku fréttastöðina CNN nú rétt í þessu.