Hvar stöndum við nú? Kristín Ástgeirsdóttir skrifar 31. ágúst 2017 07:00 Haustið 2007 tók undirrituð við starfi framkvæmdastýru Jafnréttisstofu á Akureyri. Ný ríkisstjórn var tekin við völdum og það stóð mikið til í jafnréttismálum. Mikil vinna hófst við að útrýma launamisrétti kynjanna, unnið var að undirbúningi að innleiðingu tveggja tilskipana Evrópusambandsins um bann við mismunun á grundvelli annars en kyns og lagt var fram frumvarp til nýrra jafnréttislaga, svo eitthvað sé nefnt. Ný jafnréttislög nr. 10/2008 voru samþykkt vorið 2008 og fólu þau í sér margvíslegar nýjungar, t.d. kvóta í öllum opinberum stjórnum, ráðum og nefndum. En skjótt skipast veður í lofti. Haustið 2008 varð efnahagshrun og við tóku ár mikils niðurskurðar og átaka. Hrunárin skiluðu ýmsum breytingum. Konum fjölgaði verulega á Alþingi og urðu í fyrsta sinn forsætis- og fjármálaráðherrar. Tala kvenna og karla var jöfn í ríkisstjórninni um sinn. Samþykkt var bann við kaupum á vændi og einka- og nektardans voru bannaðir til að reyna að stöðva vændi og mansal. Alþingi samþykkti lög um kynjakvóta í stjórnum stærri fyrirtækja og lífeyrisjóða. Þá var samþykkt að ein hjúskaparlög skyldu gilda fyrir alla. Hin svokallaða austuríska leið var innleidd en hún felur í sér að heimilt er að fjarlægja ofbeldismann af heimili. Árið 2014 var Ísland með formennskuna í Norrænu ráðherranefndinni og þá var haldin mjög eftirminnileg ráðstefna á Akureyri um stöðu kynjanna á norðurslóðum. Árið 2015 var haldið upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna með pomp og prakt og 15 ára afmæli Jafnréttisstofu. Ári síðar var kvennafrídagurinn haldinn með kröftugum útifundum rétt fyrir alþingiskosningar og veitti ekki af að minna frambjóðendur á ýmis baráttumál, t.d. launamisréttið. Þannig mætti áfram telja en síðast bar til stórtíðinda að Alþingi samþykkti lög um jafnlaunavottun sem fróðlegt verður að fylgjast með á næstu árum. Hvað er þá eftir? Hvar stöndum við nú árið 2017? Það er af nógu að taka. Það þarf að fylgja jafnlaunavottuninni vel eftir og tryggja að þau skili árangri. Það verður að bæta fæðingarorlofið, bæði að hækka þakið og lengja orlofið í 12 mánuði. Við þurfum að fara í herferð til að hvetja feður til að taka fullt fæðingarorlof. Það verður að innleiða Istanbúlsamninginn um aðgerðir til að kveða niður ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Þessi samningur Evrópuráðsins getur orðið mjög mikilvægt tæki í þeirri baráttu. Það þarf að auka öryggi fólks, ekki síst kvenna, í opinberu rými. Klám, vændi og hatursorðræða lifa allt of góðu lífi og þarf að kveða í kútinn. Það þarf að tryggja réttindi minnihlutahópa með banni við hvers kyns mismunun. Við þurfum að herða sóknina gegn heftandi staðalmyndum kynjanna, auka fræðslu um kynjajafnrétti og gera kynjafræði að skyldunámi fyrir kennara. Auka þarf hlut kvenna í forystu og við stjórnun fyrirtækja sem og í forystu samtaka atvinnulífsins. Endurmeta þarf störf hefðbundinna kvennastétta sem eru einhver þau mikilvægustu í hverju samfélagi, ekki síst kennsla og umönnun barna. Misrétti í lífeyrismálum er svo kapítuli út af fyrir sig sem þarf að taka til rækilegrar skoðunar. Þar hallar verulega á konur. Síðast en ekki síst þarf að breyta hugarfarinu og (ó)menningunni, velta ævagömlu feðraveldinu úr sessi og breyta samfélagsháttum. Fyrir nokkrum árum hlustaði ég á fræðikonur frá Mexíkó sem voru að vinna að hugmyndum um að snúa hagkerfinu alveg við. Setja umönnun, velferð og hag fólksins efst í píramídann, en atvinnulífið og stjórnkerfið neðst. Atvinnulífið og stjórnvöld eiga samkvæmt þessu að þjóna fólkinu, almannahagsmunum en ekki öfugt. Sannarlega spennandi hugmyndir. Það er verk að vinna og við eigum að vera fyrirmyndir. Við eigum að styðja og styrkja mannréttindabaráttu, ekki síst baráttu kvenna og minnihlutahópa, um allan heim. Við eigum líka að vera friðflytjendur og beita okkur í þágu friðar. Án friðar, ekkert jafnrétti, án friðar ekkert réttlæti. Ég vitna í Nóbelsverðlaunahafann Berthu von Süttner og segi: „Niður með vopnin“. Höldum vöku okkar og vinnum áfram að jafnrétti og jöfnuðu fyrir alla. Höfundur er fráfarandi jafnréttisstýra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun
Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun
Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun