Túristar á Íslandi hafðir að féþúfu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. mars 2017 13:30 Íslenskur hrossaskítur bragðast eins og Sterkar djúpur en er 300 prósent dýrari. Hið sama gildir um sælgæti af ýmsum toga þegar það er markaðssett fyrir ferðamenn. Vísir
Lundaegg eða Djúpur? Möndlur eða Lava Sparks? Líklega er flestum Íslendingum sama enda er bragðið nákvæmlega það sama. Ferðamenn átta sig þó líklega ekki á möguleikanum á að kaupa sömu vöru á næstu grösum á mun ódýrara verði. Fjallað er um málið á ferðamannasíðunni Must See in Iceland sem leggur upp með að aðstoða ferðamenn að komast ódýrt frá veru sinni á Íslandi. Eru ferðamenn meðal annars minntir á að þeir geta keypt áfengi ódýrara í fríhöfninni við komuna til landsins, fara í bíó á þriðjudögum og fleira í þeim dúrnum. Ísland er á nýjan leik orðið eitt dýrasta land í heimi, eins og tilfellið var fyrir fall bankanna haustið 2008. Svo sterk var krónan gagnvart dollara árið 2005 að kaupa mátti dollara fyrir rúmar 60 krónur svo dæmi sé tekið um stöðu gjaldmiðilsins sem hefur einmitt styrkst verulega undanfarið. Lundaeggin njóta mikilla vinsælda á Íslandi undir heitinu Djúpur. Möndlur eða hraunneistar? Lundabúðirnar, og sömuleiðis bókabúðir og aðrar verslanir á Íslandi, bjóða til sölu sælgæti í sérmerktum umbúðum þar sem íslenskt sælgæti er markaðssett fyrir ferðamenn. Sniðug hugmynd en verðmunurinn er sláandi, í það minnsta að mati greinarhöfundar á Must See in Iceland. „Ekki kaupa fáránlega dýrt nammi í lundabúðunum,“ segir í umfjölluninni en þrjár tegundir sælgætis voru teknar fyrir og framkvæmdur verðsamanburður. Annars vegar verð sælgætisins í Bónus, þar sem það er að öllum líkindum ódýrast, og hins vegar í lundabúðunum. Möndlurnar frá Freyju eru seldar undir heitinu Lava Sparks, eða hraunneistar. Verðið fyrir 150 grömm í Bónus er 215 krónur en í lundabúðunum 990 krónur. Munurinn er 775 krónur eða sem svarar til 360 prósenta. Íslenski hestaskíturinn, eða Sterkar djúpur. Hestaskítur Djúpurnar frá Freyju eru seldar undir heitinu Icelandic Puffin Eggs, eða íslensk lundaegg. Pokinn í Bónus kostar 298 krónur en 990 krónur í lundabúðununum. Munurinn er 232 prósent. Að lokum eru það Sterkar Djúpur frá Freyju sem kosta 249 krónur í búðinni en 990 krónur í lundabúðunum. markaðssett sem Icelandic Horse Doo Doo eða íslenskur hrossaskítur. Munurinn er 741 króna eða 298 prósent. Eru ferðamenn hvattir til að kaupa sælgætið í matvöruverslunum en ekki í lundabúðunum. „Sparaðu þér muninn og nýttu í að upplifa geggjaða tíma í okkar yndislega landi. Því þessi sælgætisskandall er rán í dagsbirtu.“
Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Varan verður að standa undir verðmiðanum Magnea Þórey Hjálmarsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri Icelandair Hotels frá árinu 2005. Hún telur að "þetta reddast“ viðhorfið dugi ekki lengur til í móttöku ferðamanna á Íslandi. Ef allir verðleggja sig hátt er hætta á að fólk upplifi landið dýrt miðað við gæðin. 19. október 2016 09:30 Helmingur ferða til Íslands afbókaður vegna verðlags Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa mörg hver lýst yfir áhyggjum af styrkingu krónunnar og ferðamenn á sama tíma kvartað yfir háu verðlagi hér á landi. 17. mars 2017 18:54 Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira
Varan verður að standa undir verðmiðanum Magnea Þórey Hjálmarsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri Icelandair Hotels frá árinu 2005. Hún telur að "þetta reddast“ viðhorfið dugi ekki lengur til í móttöku ferðamanna á Íslandi. Ef allir verðleggja sig hátt er hætta á að fólk upplifi landið dýrt miðað við gæðin. 19. október 2016 09:30
Helmingur ferða til Íslands afbókaður vegna verðlags Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa mörg hver lýst yfir áhyggjum af styrkingu krónunnar og ferðamenn á sama tíma kvartað yfir háu verðlagi hér á landi. 17. mars 2017 18:54