Haustspá Siggu Kling - Hrúturinn: Bæði hæfileikaríkur og gáfaður og í ástamálunum 1. september 2017 09:00
Elsku Hrúturinn minn. Þú átt svo marga aðdáendur sem líta upp til þín, dýrka þig og dá enda átt þú það til að vera svo ofsalega ákafur eins og nýfætt hrútslamb og hressa hvaða fýlupoka sem er við. Þú hefur svo marga óendanlega kosti. Það er spenna í loftinu; þú getur kallað það streitu, en ég vil frekar nota orðið spenna. Þú ert eitthvað að mikla fyrir þér aðstæður en sérð eftir 10-15 daga að þær hindranir sem þú heldur að séu til staðar eru bara til þess að beina þér í sterkari átt og fá þig til að koma með lausnir. Þú sigrar það sem er að stríða þér þessa dagana. Þú ert bæði hæfileikaríkur og gáfaður og í ástamálunum laðast að þér ótrúlega ólíkir einstaklingar svo þú gætir átt erfitt með að velja ef þig langar að binda þig. En í eðli þínu ertu trygglyndur þegar þú ert búinn að ákveða hver á að ganga með þér veginn. Þú hugsar samt stundum of mikið um það sem þú getur ekki fengið og lætur þá orku pirra þig of mikið. Þegar hugurinn er á fleygiferð verður þú að gera þér grein fyrir að þú átt ekki að lifa í framtíðinni heldur þarftu að klappa þig inn í núið (og þá meina ég bókstaflega að klappa). Þá munt þú springa út eins og páskalilja. Það ert þú sjálfur sem setur reglurnar í lífinu og þér er meinilla við að brjóta odd af oflæti þínu og biðjast afsökunar þótt þú hafir haft rétt fyrir þér. Þannig að það mun hjálpa þér alveg ofboðslega mikið næstu tvo mánuði að sýna auðmýkt. Sú örugga framkoma sem þú sýnir öðrum segir samt ekkert um sjálfan þig því þú átt það til að vera viðkvæmur og vera með lítið fuglshjarta. Svo notaðu blíðuna og gerðu meira en þú þarft og jafnvel fyrir þá sem eiga það alls ekki skilið. Það eru spennandi tímar fram undan sem gefa þér þá fullvissu um að þú ert manneskja sem fólk í kringum þig er stolt af. Þú finnur á þér ótrúlegustu hluti, svo treystu innsæi þínu sem þýðir eitthvað sem bara þú sérð inni í þér. Treystu sérstaklega þeim skilaboðum sem þú færð þegar þú ert að vakna eða þegar þú ert að sofna. Hafðu blað og blýant við hliðina á þér á náttborðinu og skrifaðu strax hjá þér það sem kemur upp í hugann því þú ert sérstaklega næmur á þessum haustmánuðum. Það eru miklar breytingar í sambandi við ný kynni á persónum sem hjálpa þér að klífa þann metorðastiga sem þig langar að klífa. Setningin sem þú færð er: Ég er sterkari en steinninn – Solid as a Rock (Ashford And Simpson)Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson, Elín Björnsdóttir, fyrirlesari og kraftaverkakona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira