Á meðan þú sefur Guðríður Kristín Þórðardóttir skrifar 12. maí 2017 08:00 Í tilefni af alþjóðadegi hjúkrunar þann 12. maí langar mig að veita lesendum örlitla innsýn í hlutverk, ábyrgð og störf hjúkrunarfræðinga á vinnustaðnum mínum, Landspítalanum. Hjúkrunarfræðingar eiga oft erfitt með að koma því í orð hvað felst í daglegum störfum þeirra. Það stafar af því að hjúkrun er með eindæmum fjölbreytt og margslungið starf og oft er erfitt að skilgreina það eða mæla árangur þess. Einn vinkill hjúkrunar og kannski sá sem er mest áberandi út á við er „hjúkrun við rúm sjúklingsins“. Hlutverk hjúkrunarfræðinga er í einfölduðu máli: eftirlit og meðferð. Þeir hafa, ásamt sjúkraliðum, viðveru á deildum allan sólarhringinn. Ég veit ekki hvort „leikmenn“ geri sér grein fyrir því - en læknar koma að öllu jafna ekki að rúmi sjúklingsins utan stofugangs nema hjúkrunarfræðingur óski eftir því. Eftirlit og mat á öryggi og heilsufari sjúklingsins er því nær alfarið á ábyrgð hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar veita sjúklingum meðferðir eins og lyfjagjöf, sárameðferð, fræðslu, hreyfingu, næringu, munnhirðu, svefn, meðferð einkenna, sálgæslu, áfallahjálp og svo mætti lengi telja. Fyrirbyggjandi meðferðir eru einnig að mestum hluta á ábyrgð hjúkrunarfræðinga og þeir hafa það hlutverk að samhæfa hina ýmsu þjónustu sem sjúklingar fá, innan sem utan spítalans - og eru í miklum samskiptum við sjúklinga, fjölskyldur og þjónustuaðila þeirra. Þar fyrir utan er hjúkrun svo mikið meira. Stór hluti þeirra 1200 hjúkrunarfræðinga sem vinna á spítalanum vinna við önnur störf en við rúm sjúklingsins. Hjúkrun á háskólasjúkrahúsi felur líka í sér dag- og göngudeildarvinnu, kennslu, þjálfun, umbætur, rannsóknir og faglega þróun í starfi. Til að vera þjóðarsjúkrahús í fremstu röð er mikilvægt að umbótastarf sé sífellt í endurskoðun. Nýsköpun í hjúkrun er því stór þáttur af starfi okkar. Gagnreynd þekking og notkun klínískra leiðbeininga er hluti af skyldum okkar í starfi. Til að veita betri innsýn í dagleg störf við rúm sjúklingsins langar mig að lýsa einu raunsæju en tilbúnu sjúkratilfelli. Gefum okkur að ég sé á næturvakt á hjartadeildinni og þá um kvöldið fær 65 ára gamall maður (Jón) skyndilega kransæðastíflu heima hjá sér og þarf að gangast undir bráða kransæðavíkkun. Ættingjum hans er vísað upp á hjartadeild en þau eru í ljósi aðstæðna í miklu uppnámi. Ég þarf því að gefa þeim tíma minn fyrirvaralaust, bjóða þau velkomin og útskýra fyrir þeim aðstæður og veita þeim áfallahjálp. Á meðan ég ræði við þau er ég að meta andlegt ástand þeirra út frá ásýnd þeirra, svörum og líkamstjáningu. Þau þurfa að finna á mínu fasi að ég kunni mitt fag, að hér séu þau örugg. Þegar Jón svo kemur á deildina í fylgd hjúkrunarfræðinga eftir kransæðavíkkunina tek ég á móti honum og gæti vel að því að hann finni fyrir öryggi líkt og fjölskylda hans. Á meðan ég tengi hann í hjartasírita, mæli blóðþrýsting, kem dreypum fyrir, stilli vökvadælur ásamt því að fá upplýsingar um aðgerðina frá hjúkrunarfræðingunum, horfi ég á hvernig hann ber sig, met líkamstjáningu hans, raddbeitingu, athygli, skoða húðlitinn, snerti handlegginn hans, met hvort húð sé rök, þurr, köld eða heit. Ég veiti einnig stungustað hans (eftir kransæðavíkkunina) athygli, sem í þessu tilviki voru bæði í úlnlið og í nára. Ég þarf að meta púlsa í hægri fótlegg þar sem nárastungan er og bera saman hitastig fóta. Ég horfi og les úr hjartsláttarritanum og spyr hann hvernig honum líður. Þær upplýsingar sem ég fékk frá hjúkrunarfræðingunum leiddu af sér eftirfarandi ályktanir...byggðar á reynslu minni og þekkingu: Hann er í blæðingarhættu, hættu á að fá hjartabilun, gæti mögulega fengið drep í fótlegginn, hann gæti fengið hjartsláttartruflanir - bæði sleglahraðtakt eða hjartsláttarblokk. Ég þarf að fylgjast vel með og vera tilbúin að bregðast við til að hægt sé að grípa inn í tímanlega. Ég þarf þekkingu, reynslu, innsæi og athygli til að draga þessar ályktanir, vita hvernig á að meta hættuna og merki um versnun og hvernig eigi að bregðast við ef út af bregður. Mitt hlutverk er að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar kransæðastíflunnar og kransæðavíkkunarinnar, frekari veikindi eða jafnvel dauða. Vanmat á ástandi sjúklinga er eitt af því sem getur valdið alvarlegri versnun sem getur leitt til dauða. Þar eru hjúkrunarfræðingar í lykilhlutverki því eftirlitið er á þeirra ábyrgð! Þegar við vorum búin að koma Jóni fyrir hafði ég allar þær upplýsingar sem ég þurfti fyrir áframhaldið og búin að veita fjölskyldu hans þær upplýsingar sem ég hafði á þessu augnabliki. Þar sem var komin nótt var mikilvægt fyrir þau öll að reyna að sofa en þegar þau fóru ræddu þau við mig um ástandið og horfurnar. „Hvað heldur þú? Verður þetta allt í lagi? Er okkur óhætt að fara?“ Ég reyndi að draga úr áhyggjum þeirra en vera samt raunsæ. Hann fékk jú alvarlegt hjartaáfall. „Ég skal passa hann í nótt. Treystið mér.“ Ástand Jóns var ekki stöðugt þessa nótt. Honum leið vel, svaf en var með lágan blóðþrýsting og hjartsláttartruflanir. Það er enginn læknir sem hefur aðsetur á hjartadeildinni á kvöldin eða á nóttunni og þó þeir hafi það er enginn sem fylgist með síritaboðum eða lítur til með sjúklingum…nema við óskum sérstaklega eftir því. Ég ráðfærði mig við lækni, en stýrði meðferðinni á Jóni þessa nótt þar sem ég hafði meiri þekkingu en hann á því hvað Jóni var fyrir bestu. Þetta kann að hljóma eins og enn eitt dæmið um hve mikill læknaskortur er á spítalanum. En það er það ekki. Þetta er mitt hlutverk og byggir á menntun minni og reynslu. Hjúkrunarfræðingar eru mannlegir mónitorar sem eru stöðugt að meta og túlka niðurstöður. Jón var lífshættulega veikur þessa nótt og ég vakti yfir honum. Fjórum dögum seinna var hann útskrifaður heim, fór aftur út í lífið. Þakklátur. Á Landspítala er mikil áhersla lögð á gæði þjónustu og öryggi sjúklinga. Við vitum öll að umhverfi, tæki og húsakostur skiptir gífurlega miklu máli. En það er til lítils að fjárfesta í því ef mannauðurinn er fátæklegur. Þegar við tölum um “mannauð” á Landspítalanum erum við að vísa í þekkingu, reynslu, innsæi og metnað. Eins og ég lýsti hérna áðan...í hjúkrun Jóns...má sjá að hjúkrunarfræðingar standa vörð um mörg mannslíf á degi hverjum. Við náum best fram gæðum og öryggi með því að við þekkjum sjúklingana okkar, sjúkdóma þeirra, sjúkdómsferli, lyfin, einkennin og skilaboðin sem mælingar og tækin gefa okkur. Við erum statt og stöðugt að lesa í aðstæður og atferli fólks. Við erum stöðugt að meta tölur, einkenni, orð, aðstæður, atferli og túlka þessar upplýsingar...setja þær í samhengi og taka ákvarðanir með hagsmuni sjúklinga og aðstandenda í huga. Að þekkja sjúkling er ekki að vita hvað er uppáhaldsmaturinn hans, hvað hann gerði síðasta sumar eða við hvað hann starfar. Að þekkja sjúkling er að vita hvað hann þarf til að lina verkina hans, í hvaða stellingu hann sefur best þó hann geti ekki sagt það sjálfur, vita hvað linar áhyggjur hans eða minnkar mæði. Að þekkja sjúkling er að hafa öðlast reynslu og þekkingu í heilsufari hans og líðan. Að hafa öðlast innsýn og klínískt nef fyrir velferð hans og öryggi. Hvað með sjúklingana sem ég er að hitta í fyrsta skipti? Hvað tekur það mig langan tíma að „kynnast“ sjúklingi svo ég nái að tryggja öryggi hans en líka til að veita honum og fjölskyldu hans sem bestu þjónustu? Eins og í tilfelli Jóns tók það mig 3 mínútur. En það gerðist ekki að sjálfu sér. Á meðan þú sefur vakir yfir þér vel menntaður hjúkrunarfræðingur með líf þitt og velferð að leiðarljósi. Hjúkrunarfræðingar, til hamingju með daginn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar