Eigendur Tinnu ekki tekið upp úr töskunum Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 6. janúar 2017 07:00 Leitað var í gær í móanum fyrir ofan Keflavík eftir ábendingu. vísir/ernir
Umfangsmikil leit hefur staðið yfir að hundinum Tinnu frá því hún strauk úr pössun þann 29. desember. Hundasamfélagið hefur tekið saman höndum og tekið virkan þátt í leitinni. Eigendur Tinnu, Andrea Björnsdóttir og Ágúst Ævar Guðbjörnsson, lofa 300 þúsund króna fundarlaunum. Sjálf voru þau erlendis þegar Tinna týndist og hafa ekki enn tekið upp úr töskunum og ekki mætt til vinnu. Andrea er uppgefin, þreytt og þráir ekkert meir en að knúsa hundinn sinn á ný. „Við erum orðin úrvinda, ég og Ágúst og þeir sem hafa leitað síðustu daga bæði dag og nótt. Við höfum eiginlega ekkert sofið og varla farið heim til okkar þannig að við höfum lagst á sófann hjá mömmu og pabba,“ segir Andrea og bætir við að ferðatöskurnar séu í anddyrinu hjá foreldrum hennar.Sjá einnig: Facebook-hópurinn Leitin að TinnuTinnu er sárt saknað.„Við höfum einbeitt okkur að því að leita og ekki mætt í vinnu. Ágúst á sitt fyrirtæki og varð að fara til að greiða reikninga því sumir voru komnir með dráttarvexti. Heimurinn hefur nánast stoppað því Tinna er svo einstakur karakter og einstök fyrir okkur.“ Um miðjan dag í gær sást hreyfing í móanum fyrir ofan Heiðarhverfi í Keflavík og stukku leitarmenn af stað, vopnaðir pylsum og lifrarpylsu, eftirlætissnakki Tinnu. Um 2.500 manns eru í Facebook-hópnum Leitin að Tinnu og er virknin þar mikil. „Við erum orðlaus yfir því hvað fólk er gott og reiðubúið að hjálpa. Þetta er mesta martröð hundaeiganda. Að hún sé í þessum kulda, hrædd og að þjást – það er svo vont.Andrea Björnsdóttir og Ágúst Ævar Guðbjörnsson.Ég fæ mörg símtöl á dag frá fólki sem er að stappa í okkur stálinu með alls konar sögum um hunda sem voru týndir lengi. Maður heldur í vonina að Tinna sé úrræðagóð og hún finnist sem allra allra fyrst.“ Andrea hefur leitað til björgunarsveita til að reyna að fá vana leitarmenn. Þá hafa fjölmargir boðið fram aðstoð með dróna og hitamyndavél og í raun hvað sem er til að reyna að finna hundinn. „Björgunarsveitin leitar að fólki en ekki dýrum en sá sem ég talaði við var mjög almennilegur og ætlaði að setja á innri vefinn að þeir sem vildu leita mættu gera það. Þetta er orðinn mjög langur tími og við Ágúst erum orðin örvæntingarfull yfir að finna ekki greyið.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira