Fimm og hálfs árs fangelsi fyrir tvær nauðganir Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 6. janúar 2017 10:21 Héraðsdómur Reykjaness Vísir/Hari
Nítján ára piltur hefur verið dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga tveimur fimmtán ára stúlkum í sumar. Hann var átján ára þegar brotin áttu sér stað. Ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir piltinum eftir að fyrra málið kom fram. Sex dögum síðar nauðgaði hann annarri fimmtán ára stelpu. Fréttatíminn greindi frá dómnum í morgun.Pilturinn var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness þann 30. desember en málið var dómtekið fyrr í mánuðinum. Í fyrra skiptið nauðgaði hann fimmtán ára stelpu á heimili sínu í Reykjanesbæ þann 25. júlí. Lýsti stelpan hrottalegri líkamsárás þar sem pilturinn tók hana kverkataki, sparkaði og sló, steig ofan á háls hennar, hótaði að drepa hana og nauðgaði henni tvívegis. Í dóminum kemur fram að eftir fyrri nauðgunina hafi foreldrar drengsins farið með hann á geðdeild og óskað eftir aðstoð. Hann var hins vegar ekki lagður inn og undruðust foreldrar hans þá ákvörðun. Þá var ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir piltinum. Foreldrar útskýrðu að samband þeirra við son þeirra hefði verið afar erfitt undanfarin misseri. Hann væri í félagsskap sem þau þekktu ekki til, hefði flosnað upp úr vinnu og snúið sólarhringnum við. Sjá einnig:Fundu rúmfötin í ruslinu Nokkrum dögum eftir að foreldrar piltsins óskuðu eftir að sonur þeirra yrði lagður inn á geðdeild nauðgaði hann annarri fimmtán ára gamalli stúlku í austurbæ Reykjavíkur. Stelpan var flutt illa leikin á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Í framhaldinu var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald. Fyrir dómi lýsti þolandi seinni nauðgunarinnar hvernig gamli vinahópur hennar hefði hafnað henni eftir atburðinn og sagði móðir hennar að hún hafi einangrast í kjölfarið. Við geðrannsókn á piltinum kom fram að hann ætti erfitt með að finna til með öðrum og að axla ábyrgð en væri engu að síður sakhæfur. Hann neitaði sök í báðum brotum en neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi. Báðar stúlkurnar hafa átt afar erfitt uppdráttar eftir brotin, ekki nýtt sér alla tíma hjá sálfræðingi og gengið verr í skólanum.
Tengdar fréttir Stúlkurnar greina báðar frá grófu ofbeldi af hendi meints nauðgara Hinn grunaði hótaði að fyrirfara sér þegar lögregla kom að honum. Hann mun sæta geðrannsókn og verður í gæsluvarðhaldi til 19. ágúst. 9. ágúst 2016 16:47 Grunaður um tvær nauðganir: Á Litla-Hrauni næstu fjórar vikurnar Rannsókn á máli nítján ára manns sem grunaður er um að hafa nauðgað tveimur fimmtán ára stúlkum gengur vel að sögn varahéraðssaksóknara. 19. ágúst 2016 12:32 Grunaður um tvær nauðganir: Töldu ekki ástæðu til að fara fram á gæsluvarðhald við fyrri handtöku Sá grunaði sagðist við skýrslutöku þjást af ofsareiði. 11. ágúst 2016 16:34 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fleiri fréttir Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Sjá meira
Stúlkurnar greina báðar frá grófu ofbeldi af hendi meints nauðgara Hinn grunaði hótaði að fyrirfara sér þegar lögregla kom að honum. Hann mun sæta geðrannsókn og verður í gæsluvarðhaldi til 19. ágúst. 9. ágúst 2016 16:47
Grunaður um tvær nauðganir: Á Litla-Hrauni næstu fjórar vikurnar Rannsókn á máli nítján ára manns sem grunaður er um að hafa nauðgað tveimur fimmtán ára stúlkum gengur vel að sögn varahéraðssaksóknara. 19. ágúst 2016 12:32
Grunaður um tvær nauðganir: Töldu ekki ástæðu til að fara fram á gæsluvarðhald við fyrri handtöku Sá grunaði sagðist við skýrslutöku þjást af ofsareiði. 11. ágúst 2016 16:34