Stuðningsmenn Katrínar fagna nýrri könnun Jakob Bjarnar skrifar 27. nóvember 2017 16:12 Berglind og aðrir stuðningsmenn Katrínar vildu, eftir það sem á undan er gengið, vita hvort Katrín væri ekki enn jafn vinsæl og áður og það er nú komið á daginn.
Sérstakur stuðningsmannahópur Katrínar Jakobsdóttur, formann VG, vildu kanna hvort ekki væri enn sami stuðningur við hana og áður hefur verið og fengu Zenter til að gera könnun um viðhorf landsmanna til þess hver ætti að verða næsti forsætisráðherra Íslands. Könnunin var gerð á dögunum 10.-21. nóvember og var úrtakið 2048 manns. Spurt var: „Hvern eftirfarandi myndir þú vilja sjá sem næsta forsætisráðherra Íslands?“ og gátu svarendur valið úr hópi forystumanna íslenskra stjórnmálaflokka. Í tilkynningu frá hópnum segir: „Af þeim sem tóku afstöðu vildu 49,5% svarenda sjá Katrínu Jakobsdóttur sem næsta forsætisráðherra en næst á eftir vildu 20,5% sjá Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins og svo 10,2% Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins. Aðrir forystumenn fengju minna en 10%.“Ánægð með niðurstöðunaVísir ræddi við talsmann hópsins, Berglindi Häsler, og innti hana eftir ástæðunni fyrir því að ráðist var í að kanna þetta sérstaklega? Berglind segir að þau hafi viljað athuga hver stuðningur við Katrínu væri nú „eftir það sem á undan er gengið,“ eins og hún orðar það. Og er þá að vísa til óánægju með yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður sem hefur sýnt sig, bæði innan VG og hjá vinstra fólki almennt. „Já, og athuga hvernig stemmningin væri í samfélaginu og enn þessi stuðningur við hana sem verið hefur. Og það er greinilegt. Ekkert að slá á það.“ Berglind segist ekki vilja negla neitt niður um hvernig beri að túlka könnunina að öðru leyti en metur það þó sem svo að þarna sé vísbending um að stuðningur sé enn til staðar þrátt fyrir hinar umdeildu viðræður. Hún vill ekkert gefa út á það hvort þessar niðurstöður séu með þeim hætti að vert sé að hafa með sér þegar stór hópur sem kemur saman á flokkráðsfund á miðvikudag til að yfirfara drög að stjórnarsáttmála Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. „Nei, nú þurfum við bara að sjá hvernig samningur verður borinn á borð. Svo verður afstaða tekin í kjölfarið.“Vísbending um jákvæðni gagnvart stjórnarsáttmálaBerlind segir að þessi niðurstaða hafi ekki komið sér á óvart. Spurð um hvaða hópur þetta væri, nánar tiltekið, sem að könnuninni stæði segir Berglind að um sé að ræða hóp sem „styður Katrínu í þessum samningaviðræðum, eins langt og það nær. Við höfum sagt að við treystum henni fullkomlega að fara í gegnum þetta ferli og haldi hugsjónum hreyfingarinnar á lofti í því. Þetta er ákveðinn hópur sem treystir henni fullkomlega og öðrum í forystunni. Þetta er reynslumikið fólk.“ Umræddur stuðningsmannahópur er stór, að sögn Berglindar, fólk um allt land sem stendur við bak Katrínar og margir þar á meðal sem eru að fara að mæta á flokksráðsfundinn til að fjalla um stjórnarsáttmálann.Segir í lagi að spara stóru orðin um KatrínuBerglind vill ekki svara því játandi að könnunin megi heita til marks um ugg innan VG. „Nei, get ekki sagt það. En, það er gott að vita að við séum að fara í rétt átt. Að það sé ekki ennþá stuðningur.“ Vísir greindir frá því að Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður er ósáttur við það sem hann telur ómaklegar árásir á Katrínu, að hún sé vænd um óheilindi og lygar. Hann hlaut bágt fyrir á Facebook. Berglind vill ekki taka undir með Kolbeini án fyrirvara. „Mér finnst bara allt í lagi að skoða þetta mál, leyfa henni að klára þetta verkefni. Spara stóru orðin þar til þetta liggur fyrir. En fólki er náttúrlega frjálst að hafa sínar skoðanir og maður verður að þola svona skoðanaskipti.“
Tengdar fréttir Kraumandi óánægjan brýst út á vegg Kolbeins Kolbeinn Óttarsson Proppé fær það óþvegið á Facebookvegg sínum. 27. nóvember 2017 11:42 Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fleiri fréttir Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Sjá meira
Kraumandi óánægjan brýst út á vegg Kolbeins Kolbeinn Óttarsson Proppé fær það óþvegið á Facebookvegg sínum. 27. nóvember 2017 11:42