
Umboðsmaður um mál Gísla Þorgeirs: Getur ekkert kvartað
Samningur Gísla við FH rennur út í vor og hann gengur þá í raðir Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar.
Hjörtur Hjartarson ræddi um mál Gísla við umboðsmanninn Arnar Frey Theodórsson í Akraborginni á dögunum.
„Nú þarf ég að geta sett mig í nokkur hlutverk. Sem FH-ingur er ég mjög sár að mitt félag fái ekki fullt af peningum fyrir leikmann sem þeir selja út. Sama á við um Óðinn [Þór Ríkharðsson]. Ég veit ekkert hvort þeir fá pening fyrir hann,“ sagði Arnar.
„Þetta kemur niður á einn punkt. Hvað segir samningurinn hans? Þegar menn semja hljóta þeir að vera sammála því sem er í samningnum. Ef þetta er ekkert rætt í samningnum eða í samningaferlinu hljóta menn að vera sáttir með þessa niðurstöðu. Þú getur ekkert kvartað. Þú samdir svona og þannig er það bara.“
FH getur sótt um uppeldisbætur fyrir Gísla til EHF. Arnar hefur ákveðnar skoðanir á þeim.
„Þau eru frekar skrítin að mínu mati og kolólögleg. Segjum að Gísli fari næsta sumar og það er ekki búið að semja um þessi uppeldisgjöld við félagið þarf samt að borga FH fyrir samningslausan leikmann. Bosman-málið var um þetta. Samt er handboltinn enn með þessar reglugerðir,“ sagði Arnar en félagið sem kaupir samningsbundinn leikmann þarf einnig að greiða landssambandinu ákveðna upphæð ef hann hefur spilað landsleiki.
„Þessi upphæð er sett en það má semja um hana. Hún er 800 evrur fyrir hvert tímabil sem þú spilar landsleik eða ert á skýrslu í opinberum landsleik. Þetta safnast upp frá 16 til 23 ára aldurs. Ef þú skiptir eftir 23 ára eru engin uppeldisgjöld. Fyrir félagslið þarftu að vera með atvinnumannasamning og það kostar 2500 evrur fyrir hvert tímabil,“ sagði Arnar sem er m.a. umboðsmaður Arons Pálmarssonar sem fór einmitt frá FH til Kiel fyrir átta árum.
Hlusta má á viðtalið við Arnar í spilaranum hér að ofan.
Tengdar fréttir

Gísli Þorgeir: Óraunverulegt að tala við Alfreð um að spila fyrir Kiel
Gísli Þorgeir Kristjánsson ætlar að nýta hvern einasta dag sem hann fær undir stjórn Alfreðs Gíslasonar.

FH fær ekki krónu frá Kiel fyrir einn efnilegasta handboltamann Evrópu
Gísli Þorgeir Kristjánsson vildi aðeins gera eins árs samning við FH síðasta sumar sem þýðir að FH fær ekki neitt fyrir hann þegar hann fer til þýska stórliðsins Kiel eftir þetta tímabil.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - FH 29-33 | FH komið með þriggja stiga forskot
Afturelding komst ekki nær efstu deildum Olís-deildar karla í kvöld er liðið varð að sætta sig við tap gegn toppliði FH.

Gísli Þorgeir búinn að semja við Kiel
Landsliðsmaðurinn ungi fetar í fótspor Arons Pálmarssonar hjá sigursælasta liði Þýskalands.

Kiel að fá „hinn nýja Aron Pálmarsson“
Ungstirnið úr Hafnarfirði fer út jafngamall og til sama liðs og Aron Pálmarsson fyrir átta árum.

Þegar besti þjálfarinn hringdi var þetta engin spurning
FH-ingurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson gengur í raðir þýska stórliðsins Kiel næsta sumar. Hann hlakkar til að spila undir stjórn Alfreðs Gíslasonar og ætlar að nýta eina tímabilið sem hann fær undir hans stjórn sem best. Gísli vonast

Róbert óvænt í 28 manna hópi Geirs
Geir Sveinsson landsliðsþjálfari hefur valið þá 28 leikmenn sem koma til greina í hópinn á EM í Króatíu í janúar.