Sænska ríkisstjórnin boðar til fréttamannafundar í fyrramálið Atli Ísleifsson skrifar 26. júlí 2017 17:21 Stefan Löfven forsætisráðherra mun sitja fyrir svörum á fréttamannafundi morgundagsins. Vísir/AFP
Sænska ríkisstjórnin hefur boðað til fréttamannafundar í fyrramálið þar sem brugðist verður við yfirvofandi vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar gegn þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar vegna gagnaöryggishneykslis. Frá þessu greindi Odd Guteland, fjölmiðlafulltrúi Jafnaðarmannaflokksins, nú síðdegis, en Stefan Löfven forsætisráðherra mun sitja fyrir svörum á fundinum. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar komu saman til fundar á skrifstofum ríkisstjórnarinnar nú síðdegis og var tilkynnt um fréttamannafund morgundagsins að honum loknum. Anna Johansson innviðaráðherra, Peter Hultqvist varnarmálaráðherra og Anders Ygeman innanríkisráðherra berjast nú fyrir pólitísku lífi sínu vegna þáttar þeirra í misheppnaðri útvistun tölvukerfis samgöngustofnunar Svíþjóðar árið 2015. Sumar heimildir sænskra fjölmiðla herma að ríkisstjórnin muni segja af sér og opna á að bandalag hægriflokka stjórni landinu undir forsæti Anna Kinberg-Batra, leiðtoga hægriflokksins Moderaterna, fram að þingkosningunum sem fyrirhugaðar eru á haustmánuðum 2018. Allt mun þetta þó skýrast í fyrramálið. Ríkisstjórnin hefur viðurkennt að útboðsferlinu hafi verið flýtt og lög hafi verið virt að vettugi þegar IBM í Svíþjóð fékk samning um að reka tölvukerfið. Í kjölfarið gátu starfsmenn í Austur-Evrópu komist í viðkvæm gögn sem geymd voru í kerfinu. Meðal annars hefur komið fram að heimilisföng sænskra orrustuflugmanna gætu hafa verið aðgengileg fólki sem ekki hafði öryggisheimild til þess.
Tengdar fréttir Sænska stjórnarandstaðan krefst afsagnar ráðherra Þrír ráðherrar í minnihlutastjórn Stefans Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar eiga yfir höfði sér vantraust á þingi vegna hneykslismál sem varðar gagnaöryggi ríkisins. Stjórnin gæti jafnvel riðað til falls verði vanstrauststillaga stjórnarandstöðunnar samþykkt. 26. júlí 2017 13:11 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira
Sænska stjórnarandstaðan krefst afsagnar ráðherra Þrír ráðherrar í minnihlutastjórn Stefans Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar eiga yfir höfði sér vantraust á þingi vegna hneykslismál sem varðar gagnaöryggi ríkisins. Stjórnin gæti jafnvel riðað til falls verði vanstrauststillaga stjórnarandstöðunnar samþykkt. 26. júlí 2017 13:11