Strætóbílstjórar á Akureyri þurftu að fara í verkfall svo salernis- og kaffiaðstaða þeirra væri þrifin Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. desember 2017 20:30 Sigurður Gíslason öryggistrúnaðarmaður hjá Strætisvögnum Akureyrar er ósáttur við samskiptaleysi og óþrifnað eftir lokun Nætursölunnar. vísir/pjetur
Nætursölunni í miðbæ Akureyrar var lokað fyrir þremur vikum vegna rekstrarerfiðleika en hún hefur verið opin fyrir fólk sem bíður eftir strætó og einnig verið salernis- og kaffiaðstaða fyrir strætóbílstjóra. Bílstjórarnir fengu að nota aðstöðuna áfram eftir lokun Nætursölunnar en þar sem eignin hafði ekki verið þrifin síðan rekstri var hætt fengu bílstjórar á Akureyri sig fullsadda og og lögðu niður akstur í einn og hálfan tíma í dag.Skortur á upplýsingum „Ég held að þetta sé komið í lag allt saman,“ Segir Sigurður Gíslason öryggistrúnaðarmaður hjá Strætisvögnum Akureyrar í samtali við Vísi. Hann segir ekki annað hafa verið í stöðunni til að mótmæla því að aðstaða bílstjóranna hefði ekki verið þrifin í þrjár vikur. Áður hafði verið haft samband við eigendur vegna þrifnaðarleysis á starfsmannaaðstöðunni. Sigurður gagnrýnir samskiptaleysi bæjaryfirvalda við strætóbílstjórana. „Það er ekkert talað við okkur, það eina sem við vissum um lokun á Nætursölunni var að það var skrifað á töflu hjá okkur: „Nætursölunni hefur verið lokað,“ og svo fréttum við ekkert meira.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sigurður hefur þurft að hafa samband vegna þrifa á húsnæðinu, bílstjórarnir hafa staðið í stappi við bæjaryfirvöld í nokkur ár vegna þrifa. „Það eru þrjú og hálft ár síðan það lak skólplögn á snyrtingunni okkar. Hún hætti að vísu að leka eftir nokkra mánuði.“ Var það þó ekki vegna þess að lögnin hefði verið löguð og hafa bílstjórar þrýst á bæjaryfirvöld að laga skemmdirnar að fullu, án árangurs. Sigurður segir að þrifin hafi lengi verið ófullnægjandi. Fasteignin er í eigu umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar en óvíst er hvort önnur starfsemi muni taka við í húsinu.Mótmælin skiluðu árangri „Okkur finnst óþægilegt að geta ekki haft þetta opið fyrir fólk en við treystum okkur ekki að hafa þetta opið án vörslu því þarna safnast saman allskonar lið,“ sagði Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðar Akureyrar um lokunina í samtali við Vikudag. Mótmæli bílstjóranna stóðu frá 8.30 til 10 í dag skiluðu þau árangri því Akureyrarbær lét þrífa húsnæðið í dag. „Þeir eru búnir að semja við fyrirtæki til að sjá um það,“ segir Sigurður en hann fagnar því þar sem húsnæðið sé vel staðsett og henti sem aðstaða fyrir bílstjórana. Strætóbílstjórarnir munu áfram hafa aðstöðu í húsinu og akstur hefur verið með hefðbundnu móti frá því mótmælunum lauk klukkan 10 í dag. „Ég held að þetta verði til þess að það verði meira upplýsingaflæði,“ segir Sigurður vongóður um framhaldið og telur hann að búið sé að skera á hnútinn.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira