Hrafnistusamstæðan hótar leigendum sínum Jón Þórðarson skrifar 3. apríl 2017 08:00 Um þessar mundir er verið að rétta yfir tveim konum, sem ákærðar eru fyrir að ætla sér að kúga fé út úr fyrrverandi forsætisráðherra. En lögreglan kom og rannsakaði málið, sendi skýrslu til saksóknara, sem síðan lagði fram kæru í málinu. Og sjálfsagt hljóta þessar konur sinn dóm, vonandi sanngjarnan. „Ólíkt höfumst við að“ sagði álfkonan í ævintýrinu. Á sama tíma er stórt húsaleigufélag hér á höfuðborgarsvæðinu að leika svipaðan leik og konurnar tvær. Þann 10. febrúar síðastliðinn var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem Naustavör ehf (dótturfélag Hrafnistu) var dæmt til að endurgreiða nokkrum leigendum sínum í Boðaþingi oftekin húsgjöld fjögur ár aftur í tímann. Aðrir íbúar sem svipað er ástatt um ættu að hafa sama rétt. Í þessum húsum eru 95 íbúðir og umræddar bætur geta numið allt að hálfri miljón á íbúð. Þarna er því um nokkra upphæð að ræða, samanlagt. Brottfluttir leigendur sem hér hafa dvalið um einhvern tíma síðastliðin fjögur ár eiga líka þennan sama bótarétt, eftir þeirri tímalengd sem búsetan stóð. Viðbrögð þessa ágæta leigufélags eru ekki sú að endurgreiða leigendum sínum þær fjárhæðir sem dómurinn ákvað. Öðru nær. Í þess stað senda þeir öllum íbúum hér bréf, þar sem farið er fram á að þeir falli frá öllum kröfum sínum á hendur Naustavarar ehf, ella verði þeim sagt upp húsnæðinu. Þeim leigendum sem ekki ganga að þessum afarkostum er sagt að þeim verði boðinn nýr leigusamningur „á öðrum kjörum“. Engin nánari skilgreining hefur fengist á því hver þau kjör muni verða. Ekki fæ ég betur séð en þarna sé um fjárkúgun að ræða, svipaða og Sigmundur Davíð varð fyrir. Meðalaldur fólks í þessum íbúðum er um það bil 82 ár. Að hóta fólki á þessum aldri því, að ef þau neita að falla frá lögvörðum kröfum af þessu umfangi, þá verði þeim sagt upp húsnæðinu er að mínu mati ekkert annað en fjárkúgun. Hver verða viðbrögð þjóðfélagsins? Vill lögreglan rannsaka þetta sem tilraun til ólögmætrar nauðungar? Verði svo – mun þá saksóknari ákveða að ákæra Naustavör ehf? Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Sjá meira
Um þessar mundir er verið að rétta yfir tveim konum, sem ákærðar eru fyrir að ætla sér að kúga fé út úr fyrrverandi forsætisráðherra. En lögreglan kom og rannsakaði málið, sendi skýrslu til saksóknara, sem síðan lagði fram kæru í málinu. Og sjálfsagt hljóta þessar konur sinn dóm, vonandi sanngjarnan. „Ólíkt höfumst við að“ sagði álfkonan í ævintýrinu. Á sama tíma er stórt húsaleigufélag hér á höfuðborgarsvæðinu að leika svipaðan leik og konurnar tvær. Þann 10. febrúar síðastliðinn var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem Naustavör ehf (dótturfélag Hrafnistu) var dæmt til að endurgreiða nokkrum leigendum sínum í Boðaþingi oftekin húsgjöld fjögur ár aftur í tímann. Aðrir íbúar sem svipað er ástatt um ættu að hafa sama rétt. Í þessum húsum eru 95 íbúðir og umræddar bætur geta numið allt að hálfri miljón á íbúð. Þarna er því um nokkra upphæð að ræða, samanlagt. Brottfluttir leigendur sem hér hafa dvalið um einhvern tíma síðastliðin fjögur ár eiga líka þennan sama bótarétt, eftir þeirri tímalengd sem búsetan stóð. Viðbrögð þessa ágæta leigufélags eru ekki sú að endurgreiða leigendum sínum þær fjárhæðir sem dómurinn ákvað. Öðru nær. Í þess stað senda þeir öllum íbúum hér bréf, þar sem farið er fram á að þeir falli frá öllum kröfum sínum á hendur Naustavarar ehf, ella verði þeim sagt upp húsnæðinu. Þeim leigendum sem ekki ganga að þessum afarkostum er sagt að þeim verði boðinn nýr leigusamningur „á öðrum kjörum“. Engin nánari skilgreining hefur fengist á því hver þau kjör muni verða. Ekki fæ ég betur séð en þarna sé um fjárkúgun að ræða, svipaða og Sigmundur Davíð varð fyrir. Meðalaldur fólks í þessum íbúðum er um það bil 82 ár. Að hóta fólki á þessum aldri því, að ef þau neita að falla frá lögvörðum kröfum af þessu umfangi, þá verði þeim sagt upp húsnæðinu er að mínu mati ekkert annað en fjárkúgun. Hver verða viðbrögð þjóðfélagsins? Vill lögreglan rannsaka þetta sem tilraun til ólögmætrar nauðungar? Verði svo – mun þá saksóknari ákveða að ákæra Naustavör ehf? Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindunni.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar