Ók á 140 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á meðan hann horfði á Youtube myndband Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 9. nóvember 2017 20:00 Ökumaðurinn sá ekki lögreglubílinn þar sem hann var að horfa á símann sinn. Vísir/Getty
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni ökumann fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut og hafði hann verið í símanum undir stýri. Lögreglumenn voru í eftirlitsferð á Reykjanesbrautinni og óku á löglegum hraða þegar sportbifreið var ekið fram úr á mikilli ferð. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum var bifreiðinni veitt eftirför og svokölluð jafnhraðamæling framkvæmd. „Við náðum ekki að halda jöfnu bili fyrr en hraðinn var orðin 140 km/klst. Við gáfum þessum ökumanni merki um að stöðva sem hann og gerði strax. Í viðræðum við ökumann þá viðurkenndi hann að hafa ekki séð okkur. Hann var nefnilega í símanum,“ segir í færslu sem birtist um atvikið á Facebook-síðu lögreglunnar. „Er hann var spurður hvort hann hafi virkilega verið á 140 km hraða að tala við einhvern í símanum þá neitaði hann því, nú var þetta orðið svolítið flókið. En hann náði að útskýra þetta allt saman. Hann var ekki að tala í símann, heldur var hann að skoða myndband á Youtube.“ Ökumaður sportbifreiðarinnar var færður á lögreglustöð þar sem hann er einnig grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan hvetur ökumenn til þess að vera snjalla undir stýri. „Í guðs bænum látum símann vera á meðan við erum í akstri, það er ekkert það mikilvægt að þú stofnir þér eða öðrum í þá hættu sem af þessu skapast.“
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira