Allt byrjunarlið Grindvíkinga með yfir tíu stig í leik í einvíginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2017 16:00 Lewis Clinch Jr. var frábær í oddaleiknum og stigahæstur Grindvíkinga í einvíginu. Vísir/Anton
Grindvíkingar tryggðu sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta eftir sigur á Þór úr Þorlákshöfn í oddaleik í átta liða úrslitunum. Grindavík hafði hvorki unnið leik eða seríu í síðustu tveimur úrslitakeppnum (2015 og 2016) en bætti úr því í ár og er Grindavíkurliðið nú komið í hóp fjögurra bestu liða landsins ásamt KR, Stjörnunni og Keflavík. Það er óhætt að segja það að byrjunarlið Grindvíkinga hafi skilað sínu í einvíginu á móti Þór en allir fimm voru með yfir tíu stig að meðaltali í leik og með yfir 14 í framlagi. Lewis Clinch Jr. var frábær í gær með 30 stig og 10 stoðsendingar og allir byrjunarliðsmennirnir nema Ómar Örn Sævarsson skoruðu tíu stig. Ómar var hinsvegar með 13 fráköst og þá fékk Grindavíkurliðið einnig 25 stig frá bekknum sem var það langmesta hjá liðinu í einvíginu. Ólafur Ólafsson var síðan með 13 stig, 13 fráköst og 5 stoðsendingar en hann var sá leikmaður Grindavíkur sem var með hæstameðalframlagið í einvíginu og sá eini yfir 20. Þórsarar fengu 20 fleiri stig frá bekknum í leikjum eitt til fjögur (55-35) en Grindvíkingar jöfnuðu við þá með því að fá 20 fleiri stig frá bekknum í oddaleiknum (25-5).Flest stig í leik hjá Grindavík í einvíginu á móti Þór í 8 liða úrslitunum: 1. Lewis Clinch Jr. 22,4 2. Dagur Kár Jónsson 16,8 3. Þorleifur Ólafsson 15,0 4. Ólafur Ólafsson 14,2 5. Ómar Örn Sævarsson 10,0Hæsta framlag í leik hjá Grindavík í einvíginu á móti Þór í 8 liða úrslitunum: 1. Ólafur Ólafsson 20,8 2. Lewis Clinch Jr. 18,8 3. Ómar Örn Sævarsson 15,6 4. Þorleifur Ólafsson 15,0 5. Dagur Kár Jónsson 14,6Stig frá bekk í leikjum einvígisins: Leikur 1: Grindavík +4 (13-9) Leikur 2: Þór +10 (16-6) Leikur 3: Þór +4 (13-9) Leikur 4: Þór +10 (17-7) Leikur 5: Grindavík +20 (25-5)
Dominos-deild karla Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira