Ein lína í stað tveggja Steinunn Þorsteinsdóttir skrifar 23. maí 2017 07:00 Undanfarnar vikur og mánuði hefur mikið verið rætt um einstaka verkefni Landsnets – umræða er af hinu góða og við hjá Landsneti höfum kynnt nýtt verklag og aukið samráð. Fyrir okkur skiptir máli að sýna frumkvæði í umræðunni og að hún sé opin, heiðarleg og byggð á staðreyndum – þannig viljum við vinna, þannig vinnum við, enda eru samráð og samvinna vænlegust til árangurs. Rafmagn er ein af forsendum fyrir lífsgæðum í samfélagi eins og við lifum í dag. Það er stefna okkar og markmið að geta tryggt öllum landsmönnum, sama hvar þeir búa á landinu, öruggt rafmagn. Við höfum bent á að það þurfi að styrkja Byggðalínuna, meginflutningskerfið og framundan er umræða um hvaða leiðir eru færar í þeim efnum. Það er mikilvægt að umræðan sé upplýst og ekki byggð á gömlum upplýsingum. Við erum í síbreytilegu umhverfi og við hjá Landsneti byggjum áætlanir okkar um uppbyggingu raforkukerfisins á nýjustu upplýsingum hverju sinni.Í samvinnu við íbúasamtök á svæðinu Undirbúningur að breytingum og uppbyggingu á raforkukerfinu á höfuðborgarsvæðinu hófst árið 2005 í góðu samráði við viðkomandi sveitarfélög og var strax í upphafi gert ráð fyrir að framkvæmdunum yrði skipt í áfanga. Sumarið 2015 gerðu Landsnet og Hafnarfjarðarbær með sér samkomulag sem miðaði m.a. að því að rífa Hamraneslínur 1 og 2 og að færa Ísallínur 1 og 2, sem liggja frá tengivirkinu í Hamranesi að álverinu í Straumsvík, fjær byggðinni en samkomulagið kveður á um að verkefnunum eigi að vera lokið 2018. Það samkomulag var gert í góðri samvinnu við íbúasamtökin í Vallahverfinu.Lyklafell - Hamranes Nú hefur verið hafist handa við þann áfanga verkefnisins sem felst í byggingu Lyklafellslínu 1, sem áður hét Sandskeiðslína 1, um 25 km langrar 220 kV raflínu frá nýju 220 kV tengivirki við Lyklafell að Straumsvík, samhliða núverandi Búrfellslínu 3. Áætlað er að Lyklafellslínan liggi í lofti frá nýju 220 kV tengivirki við Lyklafell að Hrauntungum í Hafnarfirði og þaðan áfram að Straumsvík. Bygging Lyklafellslínu 1 er forsenda þess að hægt verði að rífa Hamraneslínur 1 og 2. Línan er á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar 2015-2024, samþykkt af Orkustofnun og í fullu samræmi við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulag viðkomandi sveitarfélaga. Forsendur að baki línunni eru ekki álver í Helguvík, eins og látið hefur verið í veðri vaka. Sú forsenda hefur ekki verið í áætlunum Landsnets undanfarin ár, þ.m.t. kerfisáætlun.Raunhæf umræða Í Fréttablaðinu fyrr í mánuðinum skrifar Örn Þorvaldsson um fyrirhugaðar framkvæmdir og möguleikann á að leggja hluta þeirra í jörð. Örn leggur m.a. til jarðstreng nær byggð en áætlað línustæði er og að strengirnir myndu liggja sjávarmegin við núverandi og framtíðarvatnsból höfuðborgarsvæðisins. Vatnsverndarsvæðin ná að Elliðavatni svo til að vera sjávarmegin við þau þyrfti að leggja strengina gegnum íbúðabyggð við Vatnsenda og Norðlingaholt. Til þess að uppfylla flutningsþörf yrði að öllum líkindum að leggja tvö jarðstrengssett. Slíkri jarðstrengslögn fylgir verulegt rask á framkvæmdatíma og hefði í för með sér takmarkanir á landnoktun í eða við núverandi eða áætlaða byggð. Því teljum við óraunhæft að leggja svo flutningsmikla strengi gegnum íbúðabyggð, ljóst er að slík útfærsla framkvæmdarinnar er síður en svo besta lausnin. Stefnt hefur verið að því að hefja framkvæmdir við Lyklafellslínu um mitt ár 2017 og eru sveitarfélögin með framkvæmdaleyfin til samþykktar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar