Miðill kveðst hafa séð Tinnu nálægt álverinu Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 11. janúar 2017 07:00 Líf þeirra Ágústs og Andreu snýst um að finna hundinn sem þeim þykir svo vænt um. Mynd/Úr einkasafni
Formlegri leit að hundinum Tinnu hefur nú verið hætt en áfram halda þó eigendur hennar, Andrea Björnsdóttir og Ágúst Ævar Guðbjörnsson, að leita. Andrea leitaði langt fram á mánudagsnóttina og var komin af stað í birtingu í gær. Þegar Fréttablaðið náði tali af henni var hún nálægt Vogum en hún lagði af stað við álverið í Straumsvík. „Ég var eiginlega búin að missa vonina á mánudag en fékk svo símtal frá dóttur miðils sem hafði séð Tinnu margoft, að hún væri á lífi og héldi til á þessu svæði. Dóttir hennar og barnabörnin komu með mér að leita á mánudag,“ segir Andrea. Hún bætir því við að hún sé mjög skeptísk á miðla almennt en ákvað að taka þessari vísbendingu fagnandi.Andrea biður fólk að leita í skúrum og görðum, og að hringja í síma 846-6613 telji það sig hafa séð Tinnu.„Ég hef farið til þessa miðils einu sinni og hún sá ákveðið sem enginn hefði geta vitað. Þarna fékk ég smá von en mér finnst þetta vera síðasti dagurinn því það er spáð svo miklu frosti. Skipulagðri leit er hætt og fólkið sem sá um hana á svo miklar þakkir skildar því ég er alltaf úti að leita. Það er liðinn langur tími síðan hún týndist en ef það koma upp nýjar vísbendingar þá er fólk tilbúið að koma og hjálpa, sem er ótrúlega fallegt.“ Andrea segir að stuðningurinn, sem hún hefur notið, sé ómetanlegur og nefnir sem dæmi að kona sem hafði ofnæmi fyrir hundum hefði farið að leita með börnunum sínum. „Fólk er sumt að leita langt fram á nótt og alla daga. Það er ótrúlegt. Þó að ég sé að verða úrkula vonar þá rígheld ég í vonina. Ég efast um að ég geti hreinlega hætt að leita og ég hef ekki enn mætt í vinnuna. Ágúst er farinn að vinna aftur en tíminn einfaldlega stoppar. Það er bara eitt sem kemur til greina hjá mér og það er að finna Tinnu. Þegar það gerist má heimurinn fara að snúast á ný.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Eigendur Tinnu ekki tekið upp úr töskunum Umfangsmikil leit hefur staðið yfir frá Reykjanesi að Hafnarfirði að hundinum Tinnu. Eigendur hennar lofa 300 þúsund króna fundarlaunum. Mikill fjöldi fólks hefur leitað. Eigendurnir hafa ekki mætt til vinnu frá því Tinna týndist. 6. janúar 2017 07:00 Hundurinn Tinna týnd í fjóra daga: Eigandinn býður 200 þúsund krónur í fundarlaun Hátt í fjörutíu manns leita nú að hundinum Tinnu sem týndist á Suðurnesjum fyrir fjórum dögum síðan. 2. janúar 2017 14:49 Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
Eigendur Tinnu ekki tekið upp úr töskunum Umfangsmikil leit hefur staðið yfir frá Reykjanesi að Hafnarfirði að hundinum Tinnu. Eigendur hennar lofa 300 þúsund króna fundarlaunum. Mikill fjöldi fólks hefur leitað. Eigendurnir hafa ekki mætt til vinnu frá því Tinna týndist. 6. janúar 2017 07:00
Hundurinn Tinna týnd í fjóra daga: Eigandinn býður 200 þúsund krónur í fundarlaun Hátt í fjörutíu manns leita nú að hundinum Tinnu sem týndist á Suðurnesjum fyrir fjórum dögum síðan. 2. janúar 2017 14:49