Menning

Sólrún Diego er svarti hestur jólabókavertíðarinnar

Jakob Bjarnar skrifar
Sólrún er alfræðiorðabók um allt sem viðkemur rekstri heimilisins, ofboðslega vinsæl á netinu og bók hennar rýkur út.
Sólrún er alfræðiorðabók um allt sem viðkemur rekstri heimilisins, ofboðslega vinsæl á netinu og bók hennar rýkur út. Stöð 2
Samfélagsmiðlastórstjarnan Sólrún Diego hefur skotið metsöluhöfundum fyrri ára, þeim Arnaldi og Yrsu, aftur fyrir sig og trónir nú á toppi bóksölulistans þessa vikuna.

Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda (Fibut), Bryndís Loftsdóttir, segir að svo virðist sem Sólrún sé svarti hestur þessarar bókavertíðar, en það hugtak er notað yfir þá sem koma á óvart.

„Já. Heima virðist ætla að verða forystugæðingur svartra hesta þessara bókavertíðar. Bókaþjóðin sem gefur allra þjóða mest út af bókum miðað við höfðatölu og fagnar degi bókarinnar alltaf í rúmlega viku getur varla látið einn svartan hest duga, eða verður það raunin? Þetta er dúndur vel gert hjá henni og spennandi að sjá hvaða áhrif útbreiðsla bókarinnar mun hafa á íslensk heimili á nýju ári,“ segir Bryndís.

Vinsælasta bókin fjallar um þrif

Sólrún Diego er með 25 þúsund fylgjendur á Snapchat og á Instagram eru tæplega 22 þúsund manns sem fylgjast með henni. Sólrún hefur gert sér mat úr þrifum og heimilishaldi. Sá maður sem hefði haldið því fram fyrir fimm árum að bók sem fjallaði um þrif yrði efst á bóksölulistum í fyrirsjáanlegri framtíð hefði líkast til verið talinn geggjaður. Það er ef sá hefur velkts um í menningar- og bókmenntalífinu eingöngu. En, þetta kemur hins vegar fáum á óvart sem fylgjast með á netinu og eru undir fertugu. Vinsældir Sólrúnar sem bókahöfundar eru tímanna tákn, hún er ofboðslega vinsæl á nýjum miðlum og er alfræðiorðabók um allskyns húsráð og rekstur heimilisins. Sjónvarpsstöðvarnar hljóta að fara að bítast um hana.

Björn Bragi Arnarson, sjónvarpsmaður með meiru, gefur bókina út en hann hefur verið duglegur við að kynna bókina allstaðar þar sem því verður við komið. Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Sólrúnu Diegó sem Stöð 2 tók.

Bóksölulistarnir, sem Vísir birtir nú vikulega til jóla í samstarfi við Fibut, sýna ekki uppsafnaða sölu. Þessir listar eru sala tímabilsins 20. til 26. nóvember og byggir á upplýsingum frá bóksölum landsins, dagvöruverslunum og öðrum verslunum sem selja bækur. Þá er vert að hafa hugfast að þetta er skrykkjóttur tími í bóksölu, enn eru nýjar bækur að koma til landsins vegna vandræða við prentun. Og salan er aðeins brot af því sem hún verður síðustu dagana fyrir jól, þegar hún margfaldast.

Arnaldur í þriðja sæti

En, aftur að listunum. Það er glæpasagnadrottningin, Yrsa Sigurðardóttir sem situr í öðru sæti aðallistans og hljóta það að teljast nokkur tíðindi að Arnaldur Indriðason sitji í þriðja sæti þegar innan við mánuður er til jóla.

Gunnar Helgason og Ævar Þór Benediktsson eiga mest seldu barnabækurnar líkt og í síðustu viku en Kristín Helga Gunnarsdóttir skýst á topp ungmennabókalistans með bókina Vertu ósýnilegur.

Páll Valsson er kominn í efsta sæti ævisagnalistans með Minn tíma, sögu Jóhönnu Sigurðardóttur og þar svo Syndafall Mikaels Torfasonar og Þúsund kossar Jógu eftir Jón Gnarr í öðru og þriðja sæti.

Skrykkjótt bóksala á þessum tíma

„Nú er erfitt að segja hvort lesendur séu að kaupa bækur til gjafa eða eigin lesturs í nóvember,“ segir Bryndís. Það eru ekki margir svo forsjálir að kaupa jólagjafir mörgum vikum fyrir jól en þó virðist það færast í aukana enda margsannað að bestu tilboðin koma yfirleitt í byrjun jólabókavertíðarinnar.

„Það er líka öruggara að vera snemma á ferðinni með bókainnkaupin í ár þar sem erfiðara verður fyrir útgefendur að láta endurprenta vinsælustu titlana rétt fyrir jól þar sem prentun hefur að miklu leiti færst úr landi,“ ráðleggur Bryndís, einn helsti sérfræðingur landsins um bóksölu.

Þá segir hún að mikið sé verið að kaupa bækur í pakka til Íslendinga sem búa erlendis á þessum síðustu dögum nóvembermánaðar.

Topplistinn

  1. Heima - Sólrún Diego  
  2. Gatið - Yrsa Sigurðardóttir  
  3. Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason  
  4. Amma best - Gunnar Helgason  
  5. Mistur - Ragnar Jónasson  
  6. Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson  
  7. Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson  
  8. Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson  
  9. Útkall, Reiðarslag í Eyjum - Óttar Sveinsson  
  10. Minn tími - saga Jóhönnu Sigurðardóttur - Páll Valsson  
  11. Sönglögin okkar - Ýmsir / Jón Ólafsson  
  12. Vertu ósýnilegur - Kristín Helga Gunnarsdóttir  
  13. Flóttinn hans afa - David Walliams  
  14. Gagn og gaman - Helgi Elíasson og Ísak Jónsson  
  15. 13 þrautir jólasveinanna: jólaskemmtanir - Huginn Þór Grétarsson  
  16. Áfram líður tíminn - Marry Higgins Clark  
  17. Jól með Láru - Birgitta Haukdal  
  18. Smartís - Gerður Kristný  
  19. Syndafallið - Mikael Torfason  
  20. Þúsund kossar - Jóga - Jón Gnarr  
 

Íslensk skáldverk

  1. Gatið - Yrsa Sigurðardóttir  
  2. Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason  
  3. Mistur - Ragnar Jónasson  
  4. Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson  
  5. Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson  
  6. Smartís - Gerður Kristný  
  7. Aðventa - Gunnar Gunnarsson    
  8. Skuggarnir - Stefán Máni  
  9. Örninn og fálkinn - Valur Gunnarsson  
  10. Blóðug jörð - Vilborg Davíðsdóttir  
 

Þýdd skáldverk

  1. Áfram líður tíminn (kilja) - Marry Higgins Clark  
  2. Litla bókabúðin í hálöndunum - Jenny Colgan  
  3. Sonurinn - Jo Nesbø  
  4. Saga þernunnar - Margaret Atwood  
  5. Afætur - Jussi Adler-Olsen  
  6. Sögur frá Rússlandi - Ýmsir  
  7. Áfram líður tíminn (innbundin) - Marry Higgins Clark  
  8. Kanínufangarinn - Lars Kepler  
  9. Nornin - Camilla Läckberg  
  10. Þrjár mínútur - Roslund & Hellstöm  
 

Ljóð & leikrit

  1. Heilaskurðaðgerðin - Dagur Hjartarson  
  2. Gamanvísnabókin - Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman  
  3. Hreistur - Bubbi Morthens  
  4. Ljóðasafn - Gerður Kristný  
  5. Kóngulær í sýningargluggum - Kristín Ómarsdóttir  
  6. Bónus ljóð - Andri Snær Magnason  
  7. Ljóðasafn Tómasar Guðmundssonar - Tómas Guðmundsson  
  8. Fiskur af himni - Hallgrímur Helgason  
  9. Íslensk öndvegisljóð - Páll Valsson tók saman  
  10. Íslenskar úrvalsstökur - Guðmundur Andri Thorsson valdi  
 

Barnabækur - skáldverk

  1. Amma best - Gunnar Helgason  
  2. Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson  
  3. Sönglögin okkar - Ýmsir / Jón Ólafsson  
  4. Flóttinn hans afa - David Walliams  
  5. Jól með Láru - Birgitta Haukdal  
  6. Lára fer í sund - Birgitta Haukdal  
  7. Jólakötturinn tekinn í gegn - Brian Pilkington  
  8. Fólkið í blokkinni : Dýragarðurinn - Ólafur Haukur Símonarson  
  9. Vögguvísurnar okkar - Ýmsir / Jón Ólafsson  
  10. Hvernig passa á ömmu - Jean Reagan  
 

Barnafræði- og handbækur

  1. Gagn og gaman - Helgi Elíasson og Ísak Jónsson  
  2. 13 þrautir jólasveinanna: jólaskemmtanir - Huginn Þór Grétarsson  
  3. Skafmyndalist -  
  4. Kvöldsögur fyrir uppreisnagjarnar stelpur - Elena Favilli / Francesca Cavallo  
  5. Góðar gátur - Guðjón Ingi Eiríksson  
  6. Skrifum stafina -  
  7. Dundað á jólunum -  
  8. Settu saman mannslíkamann - Richard Walker  
  9. Þegar ég verð stór - landsliðið - Gemma Cary  
  10. Finndu hvolpinn í borginni -  
 

Ungmennabækur

  1. Vertu ósýnilegur - Kristín Helga Gunnarsdóttir  
  2. Sölvasaga unglings - Arnar Már Arngrímsson  
  3. Nei, nú ert'að spauga, Kolfinna - Hrönn Reynisdóttir  
  4. Galdra Dísa - Gunnar Theodór Eggertsson  
  5. Er ekki allt í lagi með þig? - Elísa Jóhannsdóttir  
  6. Vetrarfrí - Hildur Knútsdóttir  
  7. Vetrarhörkur - Hildur Knútsdóttir  
  8. Vargöld - Þórhallur Arnórsson og Jón Páll Halldórsson  
  9. Kopbarborgin - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir  
  10. Endalokin : Útverðirnir - Marta Hlín Magnadóttir / Birgitta Elín Hassell  
 

Fræði og almennt efni, að undanskildum matreiðslu- og handavinnubókum

  1. Heima - Sólrún Diego  
  2. Útkall, Reiðarslag í Eyjum - Óttar Sveinsson  
  3. Gönguleiðir að Fjallabaki - Íris Marelsdóttir  
  4. Híf opp! Gamansögur af íslenskum sjómönnum - Guðjón Ingi Eiríksson  
  5. Með lognið í fangið - Jón Steinar Gunnlaugsson  
  6. Tíminn minn 2018 - Björg Þórhallsdóttir  
  7. Hérasprettir - Baldur Grétarsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson    
  8. Til orrustu frá Íslandi - Illugi Jökulsson  
  9. 100 Vestfirskar gamansögur 1. bók - Hallgrímur Sveinsson tók saman  
  10. Auðnustjarnan - Örn Sigurðsson  
 

Ævisögur

  1. Minn tími - saga Jóhönnu Sigurðardóttur - Páll Valsson  
  2. Syndafallið - Mikael Torfason  
  3. Þúsund kossar - Jóga - Jón Gnarr  
  4. Rúna - Örlagasaga - Sigmundur Ernir Rúnarsson  
  5. Claessen : saga fjármálamanns - Guðmundur Magnússon  
  6. Með lífið að veði - Yeomne Park  
  7. Allt kann sá er bíða kann - Silja Aðalsteinsdóttir  
  8. Elly – ævisaga - Margrét Blöndal  
  9. Alli Rúts - Helgi Sigurðsson  
  10. Anna - eins og ég er - Guðríður Haraldsdóttir  
 

Matreiðslu- og handverksbækur

  1. Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir  
  2. Gulur, rauður grænn & salt - Berglind Guðmundsdóttir  
  3. Jólaprjón - Guðrún S. Magnúsdóttir  
  4. Heklaðar tuskur - C. S. Rasmussen / S. Grangaard  
  5. Prjónaðar tuskur - Helle Benedikte Neigaard  
  6. Veisluréttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir  
  7. Grillréttir Hagkaups - Hrefna Rósa Sætran  
  8. Matarást - Nanna Rögnvaldardóttir  
  9. Stóra smákökubókin - Fanney Rut Elínardóttir  
  10. Hjálp, barnið mitt er grænmetisæta - Jón Yngvi Jóhannesson
 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×